domingo, 6 de agosto de 2006

Dagurinn á undan Frídegi verslunarmanna

Í dag er sumarfríinu officially lokið. Mætti í vinnu á 12 tíma vakt og er að vinna næstu 6 daga ... Ég held ég sé búin að hafa það of kósý í sumar :Þ
Það er brjálað að gera hérna á Sunnu, næstum 30 herbergi að fara í dag og annað eins að koma líka :O Jamm ég hefði kannski betur farið fyrr að sofa í gærkvöld *geisp* Við Orri tókum rúnt upp á Apavatn þar sem öll föðurfjölskyldan er með risasumarbústað (200+ fermetrar !) og þar var hin veglegasta grillveisla :D Því miður þurftum við að bruna til baka aftur í gærkvöldi en það var rosalega gaman :D Í vinnunni þarf ég oft að baka brauð fyrir morgunmatinn .... Einhvern veginn tekst mér alltaf að dreifa hveiti ÚTUM ALLT ! og ég sjálf er líka alltaf alveg hvít :S Þetta er eitthvað skrítið - einhver bökunarálög held ég af því ég subba alltaf mest út þegar ég er í dökkum fötum ! :P Mmmm alltaf langar mann í eitthvað sem maður getur ekki fengið ... Í augnablikinu langar mig svo í MAMÓN !! *slurpslurp* nammi nammi - Ég á líka svo góðar minningar tengdar mamón, ég og Per hökkuðum þetta í okkur í Vene, rölta á Sabana Grande, kaupa mamón af götusölumanni sem reyndi að plata mann af því við vorum útlendingar, taka svo caminión heim í La Bonita :) Jebb það verður á toppnum (jahh alla veganna mjög ofarlega) á To Do listanum mínum að kaupa mamón næst þegar ég fer til Venezuela .... á listanum er líka að fá Gabi mömmu til að búa til handa mér mínar spes arepas með hveitiklíð, þurrsteiktar á pönnu og svo bakaðar í ofni SLURP og með þessu vil ég fá stórt glas af Toddy :D Já þetta er örugglega orðinn eitt sundurliðaðasta blogg sem ég hef skrifað af því ég er búin að vera að skrifa það síðan kl. 9 í morgun *hmmm* ég næ aldrei að klára því ég þarf alltaf að gera eitthvað - sem er eðlilegt verandi í vinnunni :P Jæja ég ætla samt að segja nóg hérna, vonandi eru allir að njóta Verslunarmannahelgarinnar :D temmilega fullir, ekki rennandi blautir og með far heim á mánudaginn ;) Bæjó

No hay comentarios.: