Skólarnir byrja og þá er haustið bara mætt ! Þvílíkur grámi sem að liggur yfir Reykjavík.
Ég hef sem betur fer ekkert þurft að vera úti í þessum haustsudda því ég er nú bara í vinnunni en framundan er 3 daga frí :D
Planið er að fara í göngu á morgum með Útivistarræktinni, er búin að redda mér spes fríi bara til að geta farið og labbað en núna verð ég víst að sjá til hvað ég geri þar sem ég vaknaði bara hölt í morgun *hmm* Það var bara eins og ég hefði sparkað í ofninn eða eitthvað með hælnum en ég get ekki ímyndað mér að maður geti gert það án þess að vakna :O
Lífið er svo viðburðalítið þessa dagana að það er ekki frá miklu að segja, annað hvort er ég á haus í vinnunni eða ligg í leti heima (er alveg ótrúlega löt þegar ég er í fríi :Þ)
Planið var að æfa í Baðhúsinu fram að Bootcamp en ég bara tímdi ekki að borga 8500 kr fyrir mánuð þarna :S
Jæja hef ekki mikið meira að segja ... sumir mega þó fara að kommenta meira, kannski sérstaklega þeir sem eru að koma hingað af reunion síðunni ;) Counterinn minn kemur upp um alla laumupúka ;)

4 comentarios:
Koddu með mér í laugar, það eru ennþá til svona jólakort heima hjá mér upp á viku í ræktinni.
Ég fékk eitthvað e-mail, um að það væri verið að selja kort í húsunum á 13.þús.kall sem er í gildi til 3. jan ! Ágætiskaup í því ;o) En það styttist í Boot Campið, ég einmitt hugsaði í dag, ætli það verði ekki erfitt að mæta í útitíma þegar veðrið er svona, brrrbrrr... ;o)
heheheh verður skemmtilegt challengs ;o) Hvert ertu svo að fara labba á morgun ??
Ú bðði góð tilboð, vikukortin fríu og 13 þús fram að janúar ! Það er ekki neitt! ég er mikið búin að vera að spegúlera hvað sé best að gera fram að blessuðu bootcampinu ...
En já Rebekka þetta verður geggjað challengs :Þ Ætli málið sé ekki bara að klæða sig vel, húfur og vettlingar pottþétt málið og kannski bara Cintamani undirfötin góðu ;)
Já ég held að maður hafi gott af þessu :o) Maður er svo lítið undir berum himni hvort sem er, þannig eins gott að nota tækifærið ;o)
Publicar un comentario