miércoles, 2 de agosto de 2006

BOOTCAMP - hver er til??

Jæja eins og ég lofaði (sjálfri mér og örugglega einhverjum fleiri :P) þá á að taka þetta árið í skólanum af miklum krafti og planið er ekki bara að láta það ná yfir skólabækurnar, heldur líka matarræðið, svefninn, hreyfinguna og heimilislífið .... Frá og með deginum í gær var sumarfríið búið þannig að það má ekki lengur bara lifa á súkkulaði :P núna eru það bláber í staðinn fyrir súkkulaðið og mmmm þau eru svo góð. Næst á planinu er svo hvað maður ætti að gera til að hreyfa sig eitthvað í vetur og ég held að ég sé búin að finna rétta prógrammið .... mig langar svo í BOOTCAMP ! www.bootcamp.is ohh þetta er bara svo fullkomið, mig langar helst í útitíma og mig langar í FÉLAGSSKAP !! svo er einhver þarna úti til í að koma með mér ?? Jamm annars lítið að frétta, ekkert nema chill á þessum bæ. Við Orri keyrðum reyndar á Þingvelli í gær og röltum aðeins í góða veðrinu. Planið fyrir daginn í dag er að koma tölvumálunum hérna í lag, það þarf að taka rækilega til og formatta Emilíuna mína því hún er stútfull af drasli. Ég held að það sé líka kominn tími til að einhver kaupi í matinn ! og ætli maður þurfi ekki að taka aðeins til á heimilinu :S ohhh real life sucks, þegar ég verð rík og þá ætla ég að borga einhverjum fyrir að taka til heima hjá mér ! Það verður lítið stuð hjá mér um Versló, vinna bara og svo kíki ég aðeins upp á Apavatn á familíuna. Ég er að vinna 12 tíma vaktir allar helgar í ágúst þannig að ég sé Orra varla neitt fyrr en að skólinn byrjar aftur :S Jæja farin út í góða veðrið ....

3 comentarios:

Anónimo dijo...

úff, bootcamp er ekki fyrir mig, því miður. Læt mér nægja að kíkja einstaka sinnum í kick box þegar ég vil þræla mér út ;)

Anónimo dijo...

er búin að hugsa málið vel og ég er ekki frá því nema að maður jafnvel skelli sér með þér :o)

Anónimo dijo...

Ohh jei :D geggjað Rebekka :*