martes, 15 de agosto de 2006

Blogg að morgni dags

Ohh þetta þriggja daga frí mitt er búið. Ég hafði það bara ansi kósý um helgina :P Ég man ekkert hvað ég var að bralla á föstudagskvöldið (sökum gleymsku, ekki drykkju) en laugardagskvöldið var svaka skemmtilegt, ég og Orri fórum í brúðkaup í Keflavík og svo var veislan langt fram á kvöld ...
Fyrir sunnudaginn var ég svo búin að plana þvílíkar fjallgönguferðir en allir beiluðu á mér og mín nennti ekki ein og ákvað því að gera bara EKKI NEITT og ég stóð við það :Þ Því miður verður engin Snæfellsjökulsganga þetta árið, ég gat ekki fengið frí í vinnunni (það á hvort sem er að rigna á jöklinum næstu helgi :Þ). Það hefði samt verið gaman að komast í eina jöklagöngu :S En hey ég valdi að eyða sumrinu spígsporandi um Evrópu, maður getur víst ekki gert allt í einu :Þ Úff já btw símreikningurinn frá ferðinni var að renni inn í heimabankann - litlar 23 þús kr :O þannig að saman er þetta 33þús kall sem ég er að borga fyrir að spjalla í gemsann á meðan á ferðinni stóð :Þ Annars er allt í rólegheitunum - Ég og Rebekka erum að fara út að borða á Indian Mango í kvöld. Mér var boðið að koma frítt með einn gest af því ég vinn á gistiheimili og var að hringja til að bóka borð fyrir gesti sem að voru hérna - Auðvitað sagði ég bara "ó já ég mæti" ! Maður neitar ekki ókeypis máltíð ! :Þ Ég er líka alltaf að leita mér að tíma og fólki sem þjáist ekki af innilokunarkennd eða alltaf að vinna þegar ég er í fríi til að koma með mér í eitthvað af ferðunum hjá Arctic Rafting Geggjaðar ferðir en ég hef ekki farið í eina einustu þrátt fyrir að geta farið frítt + 1 gest Framundan er svo ekkert nema vinnan og grunnskólareunionið 25. ágúst. Það verður spes og gaman :Þ Örugglega skrítið að hitta allt í einu fólk sem maður deildi með 10 árum, nánast allri barnæskunni. en maður hefur svo ekkert séð í 6 ár ...

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég er orðin skræfa sem er hrædd við river rafting en ég er alveg til í klifur, ísklifur og sig :)

Anónimo dijo...

haha já klifur, ísklifur og sig er í boði :P ert þú í fríi einhvern virkann dag?
Mig langar mest af öllu að fara að kafa í Silfru á Þingvöllum !

Anónimo dijo...

Sko alveg til í að prófa river rafting einhvern tímann á lífsleiðinni, held að það gæti verið rosalega gaman. En ég hlakka til að sjá þig skvís á eftir :o)

Anónimo dijo...

Köfun er líka eitthvað sem ég er til í að prófa! Hélt bara að mar þyrfti að ara á námskeið og fá einhver réttindi fyrst....
En frí virkan dag, það er annað og flóknara mál...