miércoles, 23 de agosto de 2006

23. ágúst

Veist þú hvað þú átt að gera ef .... - það stendur í einhverjum og hann getur ekki andað - ef að barn brennir sig - ef að þú kemur að bílslysi - ef að þú kemur að manneskju sem er meðvitundarlaus Ég alla veganna fyrir mína parta er nokkuð viss um að ég kann ekki öll réttu handbrögðin. Ég vil ekki vera uppi á fjalli lengst frá byggðum og jafnvel símasambandi og ekki hafa hugmynd um hver réttu viðbrögðin eru ef að einhver dettur og beinbrotnar. Enn hryllilegara er að koma að bílslysi og vita ekkert hvað á að gera og frjósa... Þess vegna ætla ég á skyndihjálparnámskeið núna í október eða nóvember, get ekki farið fyrr vegna peningaleysis :S Mér finnst að það ættu að vera ókeypis skyndihjálparnámskeið fyrir alla á 2 ára fresti. Kíktu hérna til að athuga hversu mikið þú kannt í skyndihjálp ! Annars er bara allt við það sama, vinna sminna og svo eru frídagar á milli. Planið er að fara í göngu í dag en eitthvað virðist andinn í hópnum vera lélegur og ég er enn aum í blessuðum hælnum ! Annars er bara eitt barnaafmæli á morgun og svo Reunionið á fös. Ég tók mig til í morgun og reyndi að sofa út (var farin á fætur kl. 10 :S) það nefnilega varla að fara á Reunion og vera svo dauðþreyttur kl. 23 (sem ég er venjulega af því ég vakna flesta daga kl. 6:45). En já ég hef semsagt 2 daga í viðbót til að hætta að vera svona mikill snemmsofari. Ég get ekki beðið eftir að byrja í skólanum, ég hlakka svo til að fá reglu á líf mitt, berjast við að fara á fætur og fara á Hlöðuna og fara að æfa af viti ! Ég er einfaldlega ekki gerð fyrir svona óreglu :Þ Þetta væri skárra ef ég væri t.d. á 2-2-3 vöktum þá væru vaktirnar a.m.k. reglulegar en ég er bara að vinna hinn og þennan daginn. Æ jæja best að koma sér á fætur og borða eitthvað. Já og KOMA SVO FÓLK --- KOMMENTA !! heill haugur af fólki hérna í gær og flestir læðast bara um ...

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég hugsa að ef ég lenti í einhverjum svona kringumstæðum þar sem ég þarf að bjarga einhverjum að það myndi a)líða yfir mig b) frjósa og svo líða yfir mig eða c)fara að gráta :o, lofar ekki góðu ! En mér líst vel á þetta hjá þér, með námskeiðið, og sammála þetta ætti að vera skylda á tveggja ára fresti !
En hafðu það nú gott í dag mín kæra :o)

Anónimo dijo...

Hæhæ, sjáumst annað kvöld á reunioninu!!
Kv. Kata

Íris dijo...

Hæ Kata :D Já hlakka til að sjá þig annað kvöld :Þ

Kristín ... kemuru þá kannski bara með á námskeið?