sábado, 29 de julio de 2006

Heima er best

Jahá er maður þá ekki bara kominn heim ! Það er eitthvað skrítið við það að koma heim til sín eftir svona ferðalag, það ad fara heim var alltaf svo langt í burtu. Seinnipartinn í gær þá sagði María eitthvað "í flugvélinni á eftir..." og allt í einu áttaði ég mig á því að ég var á leiðinni í flug ! :P Ég er með alveg týpískt Írisarbreytingastress í gangi núna, er ekki alveg að nenna því að takast aftur á við ábyrgðina á heimilinu, skólanum, vinnunni og bara öllu því sem að fylgir hversdagslegu lífi - en þetta lagast fljótt, þarf bara smá aðlögunartíma. Það var svo ótrúlega gott að fara að sofa í rúminu mínu í gær ! Mér leið eins og ég lægi í risastórri bómullarhrúgu og ég sveif fljótt og vel inn í draumalandið. Maður er búinn að sofa á mjög misþægilegum stöðum síðustu vikurnar og kröfurnar voru orðnar ekkert rosalega háar, við María glöddumst þegar við fengum svefnstað þar sem við gátum legið beinar, skipti engu þó að undirlagid væri grjóthart :P Jæja það þýðir lítid að leggjast í heimkomuþunglyndi :P Það var svo æðislegt að hitta Orra aftur og núna höfum við alveg fram á miðvikudag til að eyða tíma saman því svo er það bara back to work ... Svo get ég líka farið að spá í Berlínarferðinni í september svona til að eyða þunglyndinu. Ég er líka búin að kaupa mér ferðabók um Suð-Austur Asíu og er svona að spá hvað maður getur gert næsta sumar :P
-Íris sem lifir ekki lengur upp úr bakpokanum-

3 comentarios:

Anónimo dijo...

velkomin heim í kuldann !!!!

Anónimo dijo...

velkomin heim í kuldann !!!!

Anónimo dijo...

já velkomin heim íris mín... við verðum nú að fara að hittast so þú getir sagt mér alla ferðasöguna ;)