Ég held að ástæðan fyrir bloggleysinu þessa dagana sé sú að ég hugsa bókstaflega ekki um annað en ferðina og ég skrifa um hana á hinu blogginu. Svo fyrir utan það þá er ég bara alltaf í vinnunni og ég get nú ekki skrifað blogg á hverjum degi um vinnuna mína *hummhugsihugs* Annars geri ég nú oft margt skemmtilegt og skrítið í vinnunni :Þ Um daginn þurfti ég að hjálpa gesti að finna bakgírinn á bílnum sem hann leigði *fliss*:Þ og svo var einn hér um daginn sem vildi að ég fyndi fyrir sig trékassa utan um 200 kílóa saumavél ! Fyrir utan þetta þá virðist ég stanslaust vera á netinu allan daginn að leita að upplýsingum um hitt og þetta, þetta klassíska opnunartímar hér og þar, finna heimilisföng en svo jafnvel líka leita að fasteignalögmönnum og dáleiðendum .... jebb endalaus ævintýri á Sunnu greinilega .... ;)
Um daginn gaf einn gestur mér sem var að fara eftir nokkra mánuði hjá okkur, rafmagnsgítar með magnara og öllu ! :O Hann nennti ekki að taka hann með sér heim. Ég get selt þetta á svona 15 þús kall ... og er að fara að gera það líklegast á mánudaginn :P Gott að fá aukamonní, fer allt í ferðasjóðinn ;)
Úff grey þið sem eruð að lesa þetta, eða ætli það sé bara nokkur að lesa blogg svona þegar sumarið er komið, á maður ekki frekar að fara út og gera eitthvað skemmtilegt .... nema kannski að það séu allir að vinna eins og ég .....
sábado, 3 de junio de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

2 comentarios:
Mér finnst alltaf svo gaman að lesa bloggið þitt, bjargar oft deginum í vinnunni hjá mér að kíkja á þig :o) En rosalega ertu í skemmtilegri vinnu, svo gaman að hitta svona margt fjölbreytt fólk....
En gangi þér rosalega vel í undirbúningnum og OMG hvað ég á eftir að sakna þín, eins gott að þið systur verðið duglegar að blogga á ferðalaginnu :o)
En jú, bloggleti hefur lagst yfir mig, tala nú ekki um í dag, þegar er geggjað veður :o) Eins gott að reyna njóta þess, það koma ekki svo margir góðir dagar á hverju sumri hérna á fróni.
ohh já og á svona góðum degi er ég á 12 tíma vakt :S Ég missti líka af öllum góðu dögunum í maí af því ef ég var ekki föst inni að lesa fyrir próf þá var ég í vinnunni ... Ætli veðurguðirnir plani góðu dagana með tilliti til vaktaplansins míns ;) :Þ
Publicar un comentario