jueves, 1 de junio de 2006

málamyndablogg :Þ

Úps langt síðan ég hef bloggað síðast :P Það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég hef bara ekki gefið mér tíma í það, ég er alltaf annað hvort í vinnunni eða að stússast út af ferðinni ... Ég hef reyndar eitthvað bloggað á interrailblogginu og kem örugglega til að blogga meira þar svona síðustu dagana áður en við förum því í dag eru bara 12 dagar til stefnu !! Ég er það mikið í vinnunni að í dag fékk ég frí og ég svaf út ... til 8 ! jebb skrítið líf þessa dagana ... Í gær náðum við Orri því í smástund að vera milljónamæringar, jahh eða svona þangað til ég millifærði þessa stóru summu yfir á yfirdráttinn okkar því þetta var nú bara greiðslan frá LÍN að koma inn :P en hey það var gaman í smá tíma að sjá svona mikinn pening á debetkortareikningnum manns :P Eins og ég segi þá geri ég lítið annað þessa dagana nema að vinna og skipuleggja :P en mér finnst þetta svo gaman, er algjörlega í essinu mínu þegar ég fæ að plana eitthvað almennilegt :P Þetta er líka svo spes plan því þetta á ekkert að vera planað :P við viljum bara kynna okkur vel hvað það er sem að við viljum sjá :) Í gær átti svo lítil prinsessa sinn fyrsta afmælisdag :) Til hamingju með afmælið Inga Sól ! :D Jæja farin að skutla hönknum mínum í vinnuna til að ég geti fengið bílinn :Þ Chao

No hay comentarios.: