viernes, 9 de junio de 2006

kannski svolítið spes í dag

Ég er í voðalega undarlegu skapi (kannski að það sé OC tónlistin) og er alveg með eina mjög persónulega færslu á fingurgómunum en ætli maður sleppi því ekki að hella úr sínum hjartaskálum á wwweraldarvefinn ... Hugsið ykkur hvað það væri frábært að gera eitthvað magnað við líf sitt, fara út í heim, eitthvert þar sem hjálpar er virkilega þurfi og gera eitthvað sem "makes a difference" ... en hvar getur maður byrjað? Verður maður að vera hérna og taka þá í kapphlaupinu mikla sem svo margir festast í; nýjan bíl, flott hús, ný föt, glæstar háskólagráður, há laun, hærri laun, enn dýrari bíl, plasma sjónvarp, ryksuga sem ryksugar sjálf ... .... hmmm ég held ég sé farin að hella smá ... hætti núna Hvað segiði einhverjar tillögur um það hvað ég á að gera við líf mitt (þar sem ég virðist aldrei geta tekið stefnu sem ég er sátt við)

1 comentario:

Anónimo dijo...

ég hef oft hugsað um hvað ég væri til í að fara einhvert þar sem fólk þarfnast okkar hjálpar. Jarðskjálftasvæði, stríð,þar sem rosaleg fátækt ríkir, bara eitthvað þar sem fólk er virkilega þurfandi. þó það væri ekki nema til að sýna þeim væntumþykju og að það er ekki öllum sama um þau.... en svo hugsa ég aftur á móti að ég gæti aldrei gert þetta , ekki bara það að ég á barn sem ég vil alls ekki fara frá heldur er myndi ég taka sársauka þeirra allt of mikið inn á mig og vera grátandi allan daginn fyrir þeirra hönd... allt of viðkvæm með svona ...
en já hei byrjunin á blogginu þínu er að fara með mig úr forvitni !! :)