haha ég hringdi alveg brjáluð í símaverið fyrir heimilissímann okkar og spurði þá hvað í fjandanum þeir væru að rukka mig aukalega þennan mánuðinn og næsta ... við erum sko ekki með heimasíma og borgum því alltaf bara fast eitt gjald .... en alla veganna þá voru þeir ekkert að ræna mig *roðn* ég fattaði ekki að þetta var sami reikningurinn tvisvar og svo var þessi aukakostnaður skráningargjald fyrir símaskrána. En samt common 600 kall !
En jæja, ég er alltaf svolítið trekkt þegar kemur að símafyrirtækjunum eftir að OgVodafone rændi mig hérna um árið. Ég var með Frítt í Fjóra hjá Íslandssíma og svo þegar það breytist í OgVodafone þá fékk ég þær upplýsingar að það myndi bara haldast eins. Svo mörgum mánuðum seinna þá einhverra hluta vegna læt ég senda mér yfirlit yfir notkunina á símanum fyrir þann mánuðinn og sá þá að þeir höfðu rukkað mig fyrir sms sem ég sendi á þá sem ég hafði skráð sem fría. Fékk svo yfirlit alveg fram að því að fyrirtækinu var breytt og helvítin höfðu alltaf rukkað mig um þetta ! Við tóku endalaus símatöl, send á hinn og þennan innan fyrirtækisins og ég hef ekki enn fengið peninginn minn ! Ég gafst upp :S
Eníhú, 3 dagar í næsta próf, mín rétt svo byrjuð að glugga í bækurnar og komst að því að ég kann bara ekki baun í spænskri málfræði :Þ jeminn
Ganga á eftir, guði sé lof því ég sat á rassgatinu og gerði ekki neitt í gær, nennti ekki einu sinni að fá mér að borða svo ég lét senda heim mat frá Nings um kvöldið því ég var að deyja úr hungri, borðaði svooooo yfir mig að ég hélt ég myndi æla....
Þetta er eitt mesta ruglþvaðurblaður blogg sem ég hef skrifað, ég er nokkuð viss um að ég á eftir að verða ég sjálf aftur þegar þessi próf eru búin .... jahhh eða alla veganna í ágúst, því eftir prófin tekur við vinnan og svo á ég eftir að gera svooooo margt áður en ég get farið til ÚTLANDA
Aumingja þið sem að lásuð þetta, ég vona að þið hafið ekki fengið höfuðverk, hérna er ein paratabs
miércoles, 10 de mayo de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
ahaha... þú ert nú meiri;)
En þú átt eftir að standa þig fínt í málfræðiprófinu, I believe in you, hehe;) GANGI ÞÉR ÚBER VEL Í SÍÐASTA PRÓFINU... SENDI ÞÉR GÓÐA STRAUMA;)
Publicar un comentario