lunes, 22 de mayo de 2006

tres semanas

Ég bara verð að kvarta yfir veðrinu ... HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ KULDANN !!! Jeminn ég er að frjósa alla daga :S Á spánni fyrir næstu vikuna fer hitinn í -1°C og hæst í 8°C brrrr ! Ég las í gær viðtal við skólastjóra Vinnuskólans og þar sagði hún að það væri vitað að það yrði gott veður á Íslandi í sumar, huh?? Mér þætti gaman að vita í hvurslags sambandi hún er við veðurguðina En jæja ég ætla bara að vera fegin að ég verð ekki á KLAKANUM í sumar ! En jæja einkunn 2 komin inn ... Ágætlega sátt við hana, allt yfir 7,25 kætir hjartað mitt því það dregur meðaleinkunnina mína upp. Núna er bara að bíða eftir þessum tveimur síðustu. Það eru komnar 2 vikur frá öðru prófinu og vika frá hinu svo þetta gæti verið tveggja vikna bið :S Við Orri fórum í gær og borðuðum á Austur-Indía fjelaginu. Maturinn þarna er geggjaður, mmmm. Ekkert smá kósý staður líka og þjónustan mjög góð. Ég elska að fara á nýja veitingastaði, bæði af því það er svo gaman að prufa nýtt og fá góðan, öðruvísi mat, en svo líka af því að þá get ég sagt gestunum á Sunnu hvað mér finnst um staðinn þegar þeir spyrja. Ég þoli ekki þegar ég er spurð að svona álitsspurningum í vinnunni og ég hef aldrei farið á staðina sem verið er að spyrja um ... Well, ætli maður drífi sig ekki að klæða sig og rölti svo í 11-11 til að finna sér eitthvað í morgunmat. Ég er ekki enn búin að fara og kaupa góða, lífræna haframjölið og er því alltaf í veseni með að fá mér morgunmat. Er nú samt búin að gera eina tilraun en það var bara ekki til :( Svo er það bara pallatími í dag (er ekki búin að fara í ræktina í svona 2 vikur :S) og svo er það auðvitað bara vinnan Bara 6 tíma vakt í dag :) Chao bellos

1 comentario:

Anónimo dijo...

Þessi kuldi ! Ég er að deyja hérna úr kulda, birrr, með rauðan nebba og hornös, not pretty.....