Talnaröðin 01:02:03, 04/05/06 mun myndast í nótt
Jahá þessi merkilega fyrirsögn var á mbl.is í dag :P
Próf númer 2 er búið, ég vona að það hafi gengið vel ! :S
Ég er á þvílíkum prófbömmer þessa dagana : / Úff ég er ekki sátt við sjálfa mig :S
En jæja bara 10 dagar eftir og svo er ég laus úr skólanum í nokkra mánuði :)
Bæ-ó

3 comentarios:
hum... ég fór að hafa smá áhyggjur af andlegri heilsu þinni þegar ég las fyrstu línuna í færslunni, en svo kom skýringin :-) En Íris, ertu búin að gleyma því að próf eru skemmtilegur tími. Þú veist, maður fær þá alveg fráært tækifæri til að sýna hvað maður er klár ;-) En annars, eigum við ekki að skella okkur á fjall á morgun? Ég er fegin að við fórum ekki í dag, sástu veðrið!
Gleymdi auðvitað að taka það fram að þessi með áhyggjurnar er mamma þín. ;-)
Mamma alltaf best :) Ég er búin að hanga inni í allan dag með dregið fyrir gluggana og svaf svo frá 19-23 :S en jú ég sá stundum aðeins glitta út og mér leist ekki vel á veðrið :P Ganga á morgun hljómar vel, ég er þó ekki komin með neitt spes fjall til að fara á ...
Publicar un comentario