viernes, 19 de mayo de 2006

say whut?

Það er greinilegt að það er alltof langt síðan kennararnir mínir voru sjálfir í skóla því þeir muna greinilega ekki hvað það er hryllilega erfitt að bíða svona eftir einkunnunum. Þetta er sérstaklega erfitt því maður veit ekkert hvenær þær koma þannig að maður er ALLTAF á Uglunni ... !!!
Annars er náttúrulega stórmál allra stórmál Silvía okkar Night. Hehe mér fannst myndirnar af henni eftir keppnina alveg adorable, hahaha búin að gráta úr sér augun yfir þessum heimsku Evrópubúum sem að skildu hana ekki og mín ætlaði bara til USA þar sem að fólk er með viti :Þ En jæja ég er as always í vinnunni, það er ekki mikið að gera í augnablikinu en það er mikið stúss samt í gangi hérna svona til að undirbúa fyrir sumartörnina sem byrjar nú eiginlega bara næstu helgi. Ég algjörlega elska að hafa húsið fullt af fólki eftir að hafa verið hérna meira og minna ein í allan vetur (jahh fyrir utan alla langtímagestina). Ég eyddi gærdeginum í miklum útréttingum og veseni. Kíkti svo í vinnuna til Orra í hádeginu og við fórum saman að borða á Gallerí Fisk ...mmmmmmm.... maturinn þar er alltaf jafn geggjaður. Seinnipartinn sat ég svo heima með hendurnar á kaffi í súkkulaði, sírópi, smjörlíki og rice krispies ... jebb ég var að búa til Rice Krispies kransaköku fyrir stúdentsveisluna á morgun. Ég virðist gera þessa köku fast einu sinni á ári og í hvert einasta skipti þá bölva ég og ragna þegar ég er byrjuð af því þetta er ekkert smá klístur og nánast meira en eins manns verk .... eeeennn eníhú ég er svo klár að ég reddaði þessu öllu og svo er bara að vona að hún líti vel út þegar búið er að setja hana saman :Þ Jæja ég ætla að hætta hér og fara að skrifa blogg fyrir interrailbloggið .... chao

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Jæja ég fann peysuna mína "roðn" var hjá M og P :o) En nammi nammi, ég þarf einhvern tíma að panta svona Rice Krisies kransaköku hjá þér, kannski næsta vor bara :o)

Anónimo dijo...

Ég er alltaf til í að hjálpa til við bakstur, amk ef ég má sleikja skálina ;) Flott mynd af þér hérna fyrir neðan :p Af hverju býður þú ekki bara í partý á morgun? Þú ert flutt að heiman og getur haldið partý ef þú vilt. Reyndar er ég að fara að vinna... gleymdi í smástund að það væri júróvísjón helgi og lét plata mig í vinnu :(

Anónimo dijo...

Takk Íris fyrir baksturinn - kakan er komin saman og er æði. Þú verður í þessu hlutverki það sem eftir er. Ófæddu börnin í fjölskyldunni munu þekkja þig sem Írisi frænku sem gerir æðislegu kransakökuna ;-)
Mamma