Sarmiento, Zapatistas, Bolívar, Moctezuma, Colón, Martín, Sor Juana, Cortéz, 1492, 1513, 1519, 1521, 1808, 1812, 1814 ................... Úff hausinn á mér er fullur ! Næsta próf á morgun og þá verða 3 af 4 prófum búin ... Ég er ansi ósátt við sjálfa mig að hafa lítið lagt á mig í allan vetur og núna fyrstu tvö prófin en ég er búin að vera ansi dugleg fyrir þetta próf enda efnið stórskemmtilegt :Þ
Sem betur fer þá er bara rúm vika eftir af prófum því ég hef virkilega áhyggjur af heilsu minni þegar ég fer heim, íbúðin þarfnast deep cleansing eftir þetta lærdómstímabil :S Bíllinn er líka eiginlega fullur af matarafgöngum því að þar sem maður vill sem minnst vera heima þá er ansi mikið borðað í bílnum :Þ Já þetta er erfitt ástand :Þ Ég þakka bara fyrir að eiga ekki barn því það væri örugglega týnt undir óhreina tauinu núna ... !
Svona er maður sætur, alla veganna á Djúpavogi
Sor Íris de la Cruz
Svona er maður sætur, alla veganna á Djúpavogi
Sor Íris de la Cruz

3 comentarios:
Íris þú ert búin að vera rosa dugleg í vetur - vinna alveg helling - það er ekki hægt að vera súper í öllu, a.m.k. ekki á sama tíma :-) En ég hef áhyggjur af því að eitthvað hafi klikkað í uppeldinu, svona miðað við lýsingar þína að þrifnaði hjá þér ;-) Allar mömmur sem ég talaði við þegar þú varst hirðulaus unglingur sögðu, hún lærir þetta af sjálfu sér þegar hún stofnar sitt eigið heimli! :-) Hvað klikkaði? ((mamma))
Sko ! Þú ert duglegust og sætust ! Mér finnst það :o) og já líka frábærtust :o)
hehe, gott komment hjá mömmu þinni, ég hugsa nebbla nákvæmlega svona um sjálfa mig: ,,þegar ég flyt að heiman á ég örugglega eftir að breytast í snyrtipinna sem safnar ekki óhreinum fötum á gólfið og vaskar alltaf upp eftir sig og veit ekkert skemmtilegra en að þurrka af" ;o)
Publicar un comentario