martes, 16 de mayo de 2006

juicy fruit

Ég er bókstaflega búin að vera OF dugleg í dag ! *geisp* Frá 9 - 15 var ég á þeytingi um allan bæ að redda hinu og þessu bæði fyrir interrailið og svo bara hlutir sem hafa verið á bið yfir prófin :S Náði þó ekki að kaupa í matinn þannig að enn um sinn verður take-out og borðað í bílnum málið :Þ Annars var það týpískt að daginn sem ég þarf að fara í passamyndatöku fyrir vegabréfið mitt þá vakna ég með annað augað bólgið ! En jæja, í gær var farið í Bláa Lónið með spænskunni og um kvöldið var borðað á Tapasbarnum ... mmmmm geggjaður matur og kvöldið var mjög skemmtilegt. Ég stakk svo af heim svona 23:30, komin með nóg af reykingum og orðin dauðþreytt :Þ Hehe já ég er alltaf eins :Þ Fyrsta einkunnin skreið líka inn í dag, 7,5 í Bókmenntum, er svo sem sátt við það, vildi fá 8 en mér gekk ekki eins vel á prófinu og ég hefði viljað ... Já en eftir heilan dag í Kringlunni þá hefur lífsviljinn verið kreistur úr mér og núna sit ég á sófanum, varla bloggandi og er eiginlega bara búin að stara út í loftið síðan ég kom heim 15:30. Spurning um að rífa sig upp aftur og reyna að gera meira gagn áður en við förum í mat til ömmu hans Orra í kvöld ...
CHAO

No hay comentarios.: