sábado, 13 de mayo de 2006

Hello and Goodbye

Ég get varla setið kjurr vegna spennings ..... Bara nokkrar klst í viðbót og þá er skólinn B Ú I N N :D Það er varla að ég sé að hugsa um það að ég sé að fara í próf, það eina sem kemur upp í huga mér er að eftir kl 15:30 í dag get ég gert hvað sem ég vil án þess að vera með samviskubit af því ég á að vera að læra En á hinn bóginn þá er ég líka oggu smá leið, ég er að hætta í spænsku :( Þetta er búið að vera svo skemmtilegt og ég hef lært svo mikið og bætt mig. Ég hafði nánast ekkert lesið á spænsku áður en ég byrjaði í haust og það var þvílíkt átak fyrir mig að byrja að lesa skólabækurnar en núna þegar ég les þá veit ég varla á hvaða tungumáli textinn er sem ég er að lesa :Þ Svo er ég líka búin að kynnast svo frábæru fólki en ég verð þó að segja að þrjár æðislegar stelpur standa upp úr.... Kolla (á Kvenna/Karla kvöldinu) Sylvía (á Mama's Tacos) Sigrún (á Rossopomodoro) Takk stelpur fyrir alveg frábært ár, hjálp með glósur, verkefni og allan fjandann :D Hvernig væri svo að vera duglegar að vera í bandi ;) Jæja kannski að maður kíki yfir glósur fyrst maður hefur tímann .... -Íris í sumarskapi-

No hay comentarios.: