domingo, 28 de mayo de 2006

Í gær tók ég þátt í minni fyrstu gæsun (hehe getur maður sagt það :P) Það var hún Lóa skvíz sem að var send út um allan bæ og þetta var svo gaman :P Við fórum fyrst á Sólon og borðuðum smá, því næst var gengið upp Laugarveginn að Helenu fögru þar sem skvísan fékk dekur. Svo skelltum við okkur í stúdío og tókum upp lag :P Því næst var farið í Laugar þar sem við fengum línudans og diskódanskennslu. Um kvöldið var svo grillað og örugglega mikið sprellað en ég þurfti að fara heim um miðnætti því ég þurfti að mæta í vinnuna kl. 7:30 :S Ég kemst því miður ekki í brúðkaupið þar sem ég verð einhvers staðar á þvælingi í lest ... en TIL HAMINGJU LÓA OG JÓI
15 dagar í ferðalagið og ég var að setja nýja færslu inn á interrailbloggið Skrifa meira seinna ...

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Þetta hefur verið frábær gæsun hjá ykkur :o) Lík flott dagskrá fyrir verðandi brúður.
Rosa flott hjá ykkur, ekki neitt svona sorglegt eins og pabbi hefur t.d. nokkrum sinnum lent í að hugga gæsina af því að hún er svo hrædd við dýrin í húsdýragarðinum...svoldið neyðarlegt ! Líklegt að vinkonurnar þekki þá ekki mjög vel vinkonu sína.....
En vona að þú hafir það súper gott, og undirbúningurinn gangi vel hjá þér :o)

Íris dijo...

haha æ já maður hefur heyrt sögur af gæsingum *hmmm* sem hafa farið úrskeiðis :P ekki gaman það :S

Vonandi gekk þér vel í prófinu ;)

Anónimo dijo...

ég veit ekki hvort ég myndi þora að mæta í mína eigin gæsun (hvort eða hvenær sem það nú verður...) ef sumar vinkonur mínar myndu sleppa sér lausum ;) En þessi gæsun hljómar skemmtileg og innan flestra skynsamlegra marka :p

Anónimo dijo...

god byrjun