Ég fór í pallatíma í gær sem væri svo sem ekki frásögufærandi nema af því ég hef sjaldan verið jafn út úr kú og í gær. Mér tókst ekki að læra sporin og sneri iðulega í vitlaus átt eða var bara að gera eitthvað allt annað en restin af hópnum var að gera, ég var einfaldlega bara ekkert að hugsa um það sem ég átti að vera að gera ...
Fyrir utan þetta þá var ég eins og fimmtug kelling sem hefur reykt í 30 ár og ekki æft neitt í 40 ár, ég bókstaflega var að deyja ég var svo andstutt :S Ætla rétt að vona að þetta sé ekki byrjunin á e-i flensu þar sem ég er heldur ekkert alltof hress í dag :S
Það virðist vera eitthvað ómeðvitað stress í mér þessa dagana, ég segi ómeðvitað af því ég er öll hin rólegasta þegar ég er með meðvitund en hmmm næturnar bera þess greinilega merki að ég er ekki alveg eins róleg og ég held :P Í fyrrinótt þá dreymdi mig nefnilega draum sem eiginlega toppar alla undarlega drauma sem mig hefur dreymt (og þeir eru margir og þeir eru undarlegir). Ég veit ekki hvort ég á að segja ykkur hvað þetta var, ég verð álitin crazy :P ahhh vita hvort sem er ekki allir að ég er hálfrugluð ;)
En jæja draumurinn snerist semsagt um RISAvaxna, eldspúandi, stökkbreytta STREPTÓKOKKA BAKTERÍU ! Hún var semsagt brún, hringlótt með lappir og hendur og ég var að flýja frá henni með einhverju fólki og þessi risavaxna baktería var að brenna skóginn sem við vorum að hlaupa í :O :P Hmmm já hvað segiði er þetta ekki með undarlegara móti ?? : /
Það er samt alveg klassískt fyrir mig þegar ég er að fara að gera eitthvað spes eins og t.d. fara á interrail að ég verði svolítið kúkú :Þ
En jæja ég stökk á fætur kl. 8 í morgun og skutlaði Orra í vinnuna því ég er í fríi í dag. Svo fórum við María á Stúdentaferðir og hún keypti sitt Interrailkort, ég þarf að bíða þar til í næstu viku þegar vegabréfið kemur til að kaupa mitt. Svo fór ég í Kringluna, verslaði í matinn mmmm það er meira en mánuður frá því það var keypt almennilega í matinn á þessu heimili !!! Fór svo með æðislega hringinn sem Orri gaf mér í AFMÆLISgjöf (já 2oghálfum mánuði of seint ;)) í minnkun.
Ég fór síðan í smá búðarrölt því mig langar svo að kaupa mér DÖKKT, LÉTT pils sem þolir að vera krumpað ofan í tösku í lengri tíma, það má ekki vera úr viðkvæmu efni þar sem ég sé fram á að þurfa að þvo það í höndunum :P og má hvorki vera of stutt né of sítt ... já þið sjáið að þetta er ekki alltof auðvelt :P Ef einhver veit um svoleiðis pils þá má hann vinsamlegast láta mig vita :D
martes, 23 de mayo de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Til að hugga þig, þá get ég sagt þér að ég er alltaf manneskjan sem sný vitlaust í pallatímum, og er þá ekkert veik eða utan við mig, ég er bara svona :o) En ég veit því miður ekki um nein svona pils, enda held ég að ég sé að verða verslunarantisti ;o)
Annars hafðu það gott í dag í fríinu þínu :o)
Fékkstu hring! til hamingu, ég hef ALDREI fengið fengið hring frá pabba þinum!
Mamma
átti ekki að kaupa interrail kortin ódýrt í DK?
Annars er bómull mörgum kostum gædd nema hún er yfirleitt ekki fljót að þorna (þó að yfir nótt í hita sé nú meira en nóg til að þurrka) Ég held að þunn bómul sé málið, meira að segja gott fyrir litinn að handþvo í köldu, þolir vel krumpur enda krumpast bómull frekar mikið ;)
Publicar un comentario