lunes, 8 de mayo de 2006

cinco semanas, yeah baby bara 5 vikur í brottför !!

Núna er komið algjört sumar í mig :P Ég er í afneitun, ég vil vera búin með prófin en það er víst eitt eftir í viðbót :S Ég hef reyndar lítið náð að njóta góða veðursins þar sem ég hef verið að vinna :S Ég skaust þó heim til mömmu og pabba í gær fyrir vinnu og náði aðeins að sleikja sólina þar í steikipottnum :) Ég fæ nefnilega alltaf heimþrá í svona góðu veðri, það er svoooo magnað kósý að vera "heima" þá. Bæði fyrir framan og aftan verður alveg svakalega heitt svo maður getur setið fyrir framan fyrir hádegi og borðað morgunmatinn sinn og svo um hádegi þá getur maður fært sig bakvið og niður og flatmagað þar og skellt sér í pottinn mmmmm En hérna hjá mér á Hlemmi er bara ekkert kósý að vera úti og ég hef ekki einu sinni svalir til að flatmaga á þannig heim fer ég :P Ég fékk svo líka afmælisgjöf í gær, María snilli vissi nákvæmlega hvað mig vantaði og gaf mér tösku utan um myndavélina (algjört möst fyrir interrailið). Svo var ég búin að ákveða hvað ég vildi fá frá Orra og það var svefnpoki, málið er að við María áttum 2 en bara annar finnst. Mamma á þennan geðveika svefnpoka sem er bara rétt 900 gr og alveg ínímíní í pokanum og mig langar ekkert smá í þannig eeeennn ég var að tékka á verðinu og vinurinn kostar 16þús kall :O ! Reyndar var annar fyrir aðeins minni kulda en hann var tæp 800 gr og kostar víst 15 þús kall :Þ Jebb göngusportið er ANSI DÝRT ! Ég meina, skórnir sem ég á kosta 25þús kall, fékk þá reyndar á 20 þús á tilboði, og allur hlífðarfatnaður hleypur á nokkrum þúsunum, jafnvel alveg þónokkrum þúsunum.
Jæja ætli maður fari ekki og geri eitthvað gáfulegt eins og að þvo þvott :P og skelli sér svo í ræktina því hún hefur svo sannarlega fengið að sitja á hakanum síðustu vikuna á meðan þessi prófatörn var, núna er þetta aðeins rólegara þar sem næsta próf er ekki fyrr en á laugardaginn næsta
-ÍÓ yfir og út-

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Úff, ég þarf líka að gera major átak í ræktinn, man ekki einu sinni hvenær ég fór síðast. Eftir daginn í dag hef ég engar fleiri afsakanir. Ég er laus alla daga allan daginn þannig að hringdu bara ef þig vantar félagsskap í ræktina.

Anónimo dijo...

fram á mánudag þeas. þá byrjar vinnan.

Anónimo dijo...

No place like home, er þaggi :o) Mig svimar nú alveg þegar mig vantar eitthvað útirvistarlegt...það er sko ekki ókeypis !
En hlakka til að sjá þig too á fimmtudaginn :o)