Próf 3 búið ! og það hefði mátt ganga betur en ég nenni ekki að spá meira í því ! Vika í næsta og núna er ég bara í vinnunni ....
En alla veganna, ég var að lesa Selmublogg og las þessa frábæru færslu um gamla vini og gamla tíma og fór þess vegna að hugsa um gamlagamla tíma ...
Þegar ég var 5-6 ára kynntist ég alveg frábærri stelpu, Kristín Laufey ég veit þú kíkir stundum ;) Ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hvernig við kynntumst en ætli við höfum ekki báðar verið nýfluttar í Suðurhvamminn sem þá var eiginlega bara í byggingu. Ég held að ég hafi aldrei eignast vinkonu sem hefur orðið jafnmikil systir mín :Þ Ég á myndir frá öllum jólum frá 6-9 ára af okkur og svo voru auðvitað María og systur hennar Sólveig og Guðrún líka allar í jólafötunum voða sætar og fínar:Þ Hún átti systur 4! sem voru allar á svipuðum aldri og við 3 systurnar svo þetta var hópur af 8 stelpum !
Ég held að það hafi verið amma hennar (hehe það gæti reyndar líka hafa verið einhver allt annar eða bara draumur :Þ) sem að sagði mér að blokkin mín væri byggð á kirkjugarði, eftir það þangað til ég flutti þaðan 15 ára var ég dauðhrædd við þennan helvítis kjallara :Þ
Ég man eftir fransbrauði með hnetusmjöri og sultu, playstation, sleðaferðir niður löngu brekkuna, ótal ævintýri hinum megin við veginn, fjallgöngum á Ásfjallið, siglingar um Ástjörnina, þegar Kristín hoppaði niður af veggnum við undirgöngin og meiddi sig og þá hætti ég við að hoppa líka :Þ ég man líka eftir fimleikamótum þar sem hún lenti alltaf einu sæti ofar en ég :Þ, Michael Jackson, göngu í gegnum kríuvarp þar sem við sungum alla leiðina til að þær myndu ekki ráðast á okkur, danshoppuleik, þegar við héldum að Elísabet hefði dottið úr rúminu sínu en í raun þá hafði orðið slys á Reykjanesbrautinni rétt hjá, áformum um að byggja göng frá húsinu mínu inn til hennar eða símalínu á milli herbergjanna og ótal ótal fleiri ...
Er nema von að ég hafi verið miður mín þegar hún svo flutti ! :D Mikið er maður heppin að eiga svona góðar minningar
sábado, 6 de mayo de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
úff, ég á svo ruglaðar minningar af mér og mínum vinkonum að ég myndi ekki þora að segja nokkrum manni frá uppátækjum okkar (eða voru það kannski bara þeirra uppátæki...?) man samt eftir vinkonu úr leikskóla sem var rosa góða að teikna og við vorum alltaf að teikna saman, hún flutti líka í burtu, alla leið til mosó. og ég man eftir strák sem ég var skotin í í leikskólanum, kom svo í ljós 10 árum síðar að Kristjana var víst skotin í sama strák ;)
Publicar un comentario