Hvað er ég búin að vera að gera í vetur ??? Alla veganna ekki læra í málfræði :S Það sökkar að vera enn í prófum. Ég er á Hlöðunni núna og hún er nánast tóm :S Gott fyrir allt fólkið sem er búið í prófum : / En jæja það er bara 1 dagur eftir og svo er ég F R J Á L S !
Það sem er að bögga mig mest er að ég held að ef að ég hefði lagt mig eitthvað fram í þessari málfræði í vetur þá myndi ég alveg kunna og skilja þetta ! Eftir að vera búin að liggja aðeins yfir þessu síðustu dagana þá hef ég lært alveg helling og þetta er bara ekkert svo flókið :S Málfræðireglur eru bara málfræðireglur og ekkert mál með það ! eeennn jæja núna er ég bara að vonast til að ná :S
Ég gerði alveg helling í gær (nema að læra). Ég fór á lagersölu 66°N í Skeifunni og keypti mér 3 peysur á 6þús kall ! Ég er meira segja að spá í að fara og kaupa mér eina í viðbót og hafa hana með á Interrailið. Um kvöldið hitti ég svo Rebekku, við fórum saman að borða á Grænum Kosti og skelltum okkur svo á Café Paris. Frábært að komast út úr húsi og hitta eitthvað fólk :D
En jæja í dag er akkúrat mánuður í að við förum út og eftir prófin tekur við undirbúningurinn fyrir ferðina. Ég er búin að reyna að ýta því frá mér hvað ég þarf að gera mikið áður en ég get farið því ég bara get ekki verið að hugsa um þetta fyrr en eftir prófin en ég held að það hafi ekki alveg tekist :P Maður er endalaust að pakka í huganum og hugsa um hitt og þetta sem þarf að gera :P
Reyndar tekur líka við undirbúningur fyrir útskriftina hennar Maríu, maður þarf víst að baka smá og svona :Þ Svo er náttúrulega fagnaðarpartý, próflokadjamm, Eurovision, vinna, einkunnir, göngur .... jebb þetta á allt eftir að gerast á einum mánuði.
Ég er búin að ákveða að fara ekki í Eyjafjallajökulsgönguna :( Það bara kemst enginn með mér og mig langar ekki að fara ein því þetta verður svo mikil upplifun og það er algjör synd að geta ekki deilt henni með einhverjum. Þannig að jöklagöngur og já líka Heklugangan verður bara að bíða til sumarsins 2007 :) Fjöllin fara ekki neitt :)
Jæja ég ætla að halda áfram að lesa um hinar ýmsu beygingar spænskra sagna, hugsið vel til mín á morgun milli 13:30 og 15:30 :)
-Íris hin überhamingjusama-

2 comentarios:
Hekla gæti náttla sprungið og jökullinn bráðnað, en ég held samt að það sé nokkuð víst að bæði verði þarna ennþá næstu ár ;)
takk kærlega fyrir kvöldið elsku Íris :o)
Publicar un comentario