lunes, 17 de abril de 2006

páskar og interrail

Ég verð að viðurkenna það að ég þoli ekki páskana ! Þetta er svo pointless frí, allt lokað, maður er bara að vinna og svo er maður étandi allskyns óhollustu allan daginn "því það eru nú páskarnir" :S Það fer bara allt úr skorðum ... jebb ég þoli ekki páskana, þar hafiði það :Þ Ég og María tókum roadtrip til Akraness í gær. Við vorum að sækja ýmislegt matarkyns sem að stelpa sem ég þekki frá Venezuela kom með til landsins fyrir mig :Þ mmmm amminammi, ég sat hérna í gær og úðaði í mig eeennnn núna eru páskarnir búnir og ég ætla að halda áfram í nammibanni og vera svolítið dugleg að hreyfa mig. Mér leið svo svakalega vel þarna á meðan ég var duglegust í þessu svo auðvitað heldur maður áfram :Þ Ég er alveg að missa mig ég hlakka svo til sumarsins :Þ Ég og María plönuðum hitt og þetta fyrir ferðina á meðan við keyrðum Hvalfjörðinn í gær og núna þá er þetta orðið svo raunverulegt :Þ Ég er virkilega að fara að láta þennan draum rætast :D Ferðaplanið er komið, það er mjög gróft en það er líka best, við ætlum bara að spila þetta eftir því hvernig ferðin fer. En svona er planið núna:
  • Byrjum í Köben 12. júní og erum þar til 15. júní. Kannski förum við reyndar til Odense og verðum þar einn dag bara til að sjá hvar við bjuggum og svona.
  • Svo verður farið til Þýskalands
  • Pólland/Tékkland
  • Svo ætlum við bara að þræða okkur niður A-Evrópu
  • Kíkja kannski til Tyrklands
  • Fara svo til Grikklands
  • Taka ferju til Ítalíu og þræða okkur þar upp
  • Þarna eigum við örugglega lítinn tíma eftir, ætlum að reyna að stoppa í París
  • Svo er það bara lest til London og frá London til Brighton þar sem við endum líklegast 15. júlí :D
Hljómar þetta ekki bara geðveikt :D Við ætlum að taka eins lítið af dóti með okkur og við mögulega komumst upp með og svo ætlum við bara að SKEMMTA OKKUR STÓRKOSTLEGA VEL :D Það er alltaf svo gaman að ná að uppfylla drauma sína. Ég hef nú þegar náð að uppfylla nokkra :Þ Fór út sem skiptinemi, kláraði stúdentinn á 3 árum, fór í HÍ :D og svo flutti ég að heiman þegar mér gafst tækifæri til (ohhh það var samt kósý að búa heima) :Þ En jæja nú get ég bráðum bætt interrailinu á listann yfir það sem ég er búin með og farið að einbeita mér að næsta draumi sem er að fara út í nám :Þ Þetta kemur allt í ljós :) Jæja sólin kallar á mig, hvað ætti maður að gera í dag; fara í sund, ræktina, ljós, í heimsókn eitthvert eða bara taka til í blessuðu íbúðinni minni :Þ hmmm ég held ég fari í ræktina ... Hasta luego .... og ég meina það ef að fólk fer ekki að kommenta hérna þá nenni ég þessu varla lengur :S Byrja þá bara að blogga aftur þegar við förum út til að eiga ferðasöguna.

5 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég geri þetta líka reglulega: hóta því að hætta að blogga því fólk er svo ótrúlega óduglegt að commenta. Fólk commentar þá við hótunarfærsluna en svo fer allt aftur í sama far......

Anónimo dijo...

Þessi ferð ykkar verður GEGGJUÐ :o) verður eitur skemmtilegt hjá ykkur ! En ég skal vera duglegri að commenta, hef lítið verið nálægt tölvunni í letinni minni ;o)

Anónimo dijo...

þið getið tekið ferju frá grikklandi yfir til BARI, það er næsta stórborg við staðin þar sem ég var. Og þá getið þið séð litlu skrítnu húsin sem ég hef talað um, þau eru í því héraði (30min frá Bari minnir mig) Mig langar með :(

Anónimo dijo...

Vá þessi ferð hljómar ekkert smá vel... Alltaf gaman að lesa e-h spennandi þegar maður á að vera að læra fyrir próf... fær allavega einbeitinguna yfir bókunum til að vera 0%....
En jæja maður þarf víst að harka þetta af sér... nokkrir dagar eftir af þessum blessaða skóla og þá er ég líka að fara til útlanda.. Roadtrip til California..

Kveðja Kristín Laufey aka klaufey..

Anónimo dijo...

Meinti sko í California... ekki að eg haldi að ég geti keyrt þanngað hehehe poteito potato...