YES loksins er hið miður skemmtilega Æl-dol búið ! Núna get ég loksins farið að tala við alla þá sem eru með Stöð 2 án þess að vera spurð um Snorra, Bríet something og hvað sem þau heita öll .... mmmm ég ætla að njóta þess að það eru alla veganna 7 mánuðir þangað til að þetta byrjar aftur, hvílíkur friður.
Ég er búin að vera að horfa á gamla þætti af ANTM og ég verð bara að segja að þessir grey þættir náðu sínum hápunkti í seríu 2 ... Annars iða ég alveg í skinninu af því mig langar svo að tala við einhvern um Jade í seríu 6 ... anyone ???? Ég er bókstaflega að springa ... !!!

Eníhá, ég er búin að vera í vinnunni í 8 tíma ... og ég á enn 2 tíma eftir og svo fæ ég frí í 14 tíma og mæti þá aftur og verð í 10 tíma. Þetta er helgi 2 sem að ég vinn svona og vá hvað maður verður þreyttur á því ... ekki misskilja mig, I love my job en ég hef bara ekki komist í morgunmat til ömmu hans Orra í 3 vikur og kemst heldur ekki næstu helgi :S Svo er bara smá leiðilegt að fá ekkert helgarfrí... en jæja nóg væl
Jamm þið sjáið að þetta er greinilega mjög viðburðalítil helgi hjá mér :Þ Ég sé fram á að sitja fram á kvöld og læra og reyna að klára þetta verkefni sem ég átti að skila í gær :S Ætli maður fari svo bara ekki snemma að sofa því ég er alveg hundþreytt... Næsta helgi verður ekki mikið skárri þar sem ég er að vinna bæði lau og sun kl. 7 um morguninn, ég verð bara að fara að skemmta mér á mánudögum !

1 comentario:
áttu einhverja frídaga í páskafríinu þar sem fólk í venjulegum ekki-vakta vinnum er í fríi??? ég er til í að taka smá tölvu/sjónvarpsmaraþon svona inná milli þess tíma sem ég segist ætla að nota til að læra....
Publicar un comentario