viernes, 21 de abril de 2006

heimsmet í buxnamátunum með minnstum árangri

Í dag setti ég heimsmet í buxnamátunum með minnstum árangri. Við mamma eyddum rúmum 6 tímum í Smáralindinni, fórum í svooo margar búðir og í hverri einustu mátaði ég bara allar buxur sem ég gat hugsað mér að ganga í. Það er bara greinilegt að gallabuxnaframleiðendur vilja ekki peningana mína Hehe í gamla daga hefði ég örugglega orðið voða leið og sár yfir að vera svona ómöguleg í vextinum en það er ekki ég sem er ómöguleg það eru beyglu buxurnar sem eru seldar ...
Ég kom þó út úr þessu verslunarævintýri með G E Ð V E I K A N kjól, 3 boli í gymmið og allskyns smálegt dót fyrir heimilið úr Sösterne Gröne búðinni (heitir hún það ekki annars ??). Það gerðist nú reyndar margt sniðugt í þessari búðarferð, ég festi mig í einum kjól sem ég var að máta ! Ég hélt að það gæti aldrei gerst að brjóstin á mér væru of stór ! Svo gerðist það í Vero Moda að ég var að máta alveg hrúgu af gallabuxum og mamma alveg súper hjálpsöm og tók fyrir mig allar buxurnar sem ég var búin að máta, þær héngu allar á snaga og á næsta snaga voru buxurnar mínar. Ég er eitthvað voða upptekin að baksa við að koma mér í næstu buxur en lít svo upp og sé að allir snagarnir eru tómir Mamma hafði þá farið með buxurnar mínar fram á slá Það tók smá tíma að finna þær aftur því að einhver dugleg búðarstelpa hafði farið að ganga frá fötunum á slánni og þar með buxunum mínum líka ... Hehe já þetta endaði samt vel og ég þurfti ekki að ganga ber að neðan út úr Smáralindinni
En jæja, alvaran hefst á morgun þá þarf maður víst að fara að byrja að læra fyrir þessu blessuðu próf sem byrja eftir viku :S Ég ætla reyndar að skrópa í lesturinn á sunnudaginn og skella mér í staðinn í ....... já auðvitað göngu Ólafsskarðsvegur er það víst í þetta skiptið, 19 km en bara 200 m hækkun (guð sem betur fer). Þetta á alveg örugglega eftir að taka allan daginn með keyrslu fram og til baka svo þetta verður víst bara að kallast smá lestrarfrí
Well, Íris uppgefna segir góða nótt

3 comentarios:

Anónimo dijo...

hahahahahaha vá hvað þetta var fyndin færsla!!!
pæl í afgreiðslukonunni að fatta ekki að buxurnar þínar væru ekki úr búðinni sem hún er AÐ VINNA Í :)
en jamm, ég á í alveg sömu vandræðum og þú, finn mér bara aldrei gallabuxur og langar svoooooo. Allar diesel gallabuxurnar sem ég átti áður en ég varð ólétt eru og stórar, jamm last rétt Íris þær eru og stórar... ömurlegt

Anónimo dijo...

Hehe.. se ykkur mædgurnar fyrir mer i buxnaleidangri, thetta er vist eitthvad i ættinni ad passa ekki i neinar buxur!
Takk fyrir sidast frænka...
Kvedja Ola

Anónimo dijo...

hehehehehe....skemmileg færsla hjá þér :o) Gangi þér rosalega vel í lestrinum :o)