miércoles, 5 de abril de 2006

Göngublogg svona fyrir þá sem nenna ekki að lesa svoleiðis

Loksins ! komst ég í göngu :Þ Var ekki búin að fara í mánuð, eða frá því að ég og Orri tókum Esjuna með trompi í byrjun mars.
Ég og Kristín skelltum okkur á hið kunnuglega Helgafell, ja kannski ekki svo kunnuglegt fyrir Kristínu en ég held að ég sé farin að þekkja þetta fjall fram og til baka. Við létum ekki rigningu, rok og þoku stoppa okkur og þetta var æði :Þ Eeennn svo kom ég heim kl. 20, Orri ekki heima og ég náði ekki í hann og viti menn ég ekki með lyklana mína (lengur) ! Jebb ég virðist hafa misst húslyklana mína einhvers staðar uppi á fjalli :Þ Ég vona að þetta verði ekki að reglu því að þegar við fórum á Esjuna þá týndi ég bíllyklinum mínum svo núna eigum við bara einn. En alla veganna, ég stóð úti í korter RENNANDI BLAUT eftir gönguna og það hélt áfram að rigna, mér var svvvoooo kalt ! Ótrúlegt en satt þá svaraði ekki neinn í húsinu til að hleypa mér inn svo ég þurfti að bíða þangað til að einhver kæmi heim :Þ Þannig að eftir korter komst ég inn og svo var pabbi svo góður að bruna úr Hafnarfirðinum með aukalykla og bjarga þannig svöngu, þreyttu, köldu og blautu dóttur sinni :* Smá sýnishorn úr göngunni, það var svo mikil þoka á toppnum að það bara sást ekki neitt :Þ Jæja ég er að spá í að eyða deginum í brjálaða tiltekt, er samt ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera, bílinn, ganginn, kjallarann eða íbúðina !! Það er af nógu að taka :S Ótrúlegt hvað það draslast hratt til aftur, mér finnst ég alltaf vera í stórtiltekt :S

2 comentarios:

Anónimo dijo...

flottar myndir ;) ég vissi að þær yrðu töff með svona EKKERT í bakgrunninum. Smá þoka þarf ekkert endilega að skemma útsýnið, bara breytir því aðeins :P

Anónimo dijo...

Dugnaðurinn í þér, ganga á fjöll og taka til...þvílíkur kraftur :o) Rosa flottar myndir af ykkur í góða veðrinu ;o)