Hmmm síðustu 2 dagar hafa eiginlega bara verið svolítið skrýtnir. Ég hef ekki gert neitt af því sem ég ætlaði að gera, btw tók ekkert til á miðvikudaginn eins og ég sagðist ætla að gera í blogginu :Þ nei í staðinn þá hreyfði ég mig ekki af sófanum allan daginn og var bókstaflega föst í e-m tölvuleik *roðn* Síðustu 2 nætur erum við Orri líka búin að gista uppi á Sunnu því ég tók að mér næturvörslu. Það var bara nokkuð kósý :Þ Fínt að fá borgað fyrir að dútla sér svona og það var náttúrulega ekkert að gera, ég þurfti bara að vera þarna ef eitthvað skildi koma upp á eða ef brunakerfið færi í gang :D
Ég er heldur ekkert búin að fara í ræktina síðustu daga og ég svo nenni heldur ekki í dag :S Ó mæ þvílík leti, ég kemst heldur ekkert í ræktina um helgina því ég er að vinna frá 10-20 báða dagana, ekki nema ég verði úber dugleg og vakni snemma en ég sé það ekki vera að fara að gerast :Þ
Annars var SÍÐASTI kennsludagurinn í dag og nú er spænskunámi mínu við HÍ lokið (allaveganna í bili, hver veit hvað gerist). Ég á reyndar eftir að skila inn einu verkefni og svo eru það auðvitað lokaprófin í byrjun maí .... en samt búhú ég á eftir að sakna spænskunnar :Þ :'(
Ég for áðan og skráði mig í kúrsa fyrir næstu önn, svona verður næsta árið:
Haustið: Próffræði 5e
Hugfræði 5e
Félagsleg sálfræði 5e
Vor: Skynjunarsálfræði 5e
Þroskasálfræði 5e
BA-ritgerð !!! 8e
Þetta er alveg ótrúlegt, eftir ár verð ég alveg pottþétt á fullu að gera BA-ritgerðina mína og eftir rúmt ár verður minz bara komin með háskólagráðu ... voðalega er það eitthvað fullorðins :Þ Ætti maður kannski að hætta að vera svona hissa á þessu öllu saman og bara sætta sig við það að maður er orðinn fullorðinn og allt sem maður gerir er voðalega fullorðins ! Búin að kaupa íbúð, á bíl, búin með stúdent, er að fara á 3. árið í HÍ, kallinn kominn með algjöra "fullorðins"vinnu, maður er komin með námslán og íbúðarlán :Þ þetta er allt voða fullorðins :Þ
Jæja ég ætla að fara og jafna mig á áfallinu, kannski læra smá, og horfa á ANTM 6 seríu :Þ



No hay comentarios.:
Publicar un comentario