domingo, 2 de abril de 2006

ein með útþrá (samt bara út úr húsi)

Ég er svo andlaus að það er bara ekki ein skýr hugsun í kollinum á mér núna ... það mætti halda að ég hefði verið á einhverju hörkudjammi í gær eeeennnn nei, mín sat bara heima, var búin seint í vinnunni og þurfti svo að mæta aftur snemma í dag svo það var rétt tími í gær til að speisa út og fara svo bara að sofa :S
Oooooohhhhhhhhh ég bara nenni svo ekki að læra !!!!!!!!! Mér finnst þetta bara vera kvöl og pína (í augnablikinu :Þ) Ég held að það sé bara komið alltof mikið sumar í mig, ég vil hafa tíma til að fara í ísrúnt á kvöldin, skella mér í sund um miðjan dag, naglalakka á mér táneglurnar og hvað það er sem að maður gerir svo sem á sumrin ... Mest langar mig í ferðalag og svona næst mest þá langar mig upp á fjall. Mér tekst þó líklegast að láta þetta seinna rætast þar sem ég og Kristín erum að plana Helgafellsgöngu á þriðjudaginn. Ég man sumarið góða þegar við Orri vorum löngu komin með nóg af því að labba bara Helgafellið svo við tókum alltaf Helgafell-Valahnjúkar-Húsfell :Þ Það er ekki skrýtið að ég hafi komist í gott form þetta sumar ! Annars tekst mér svo sem líka næstum því að láta hitt rætast, með ferðalagið. Við Orri erum að fara á hótel í eina nótt í apríl, hótel í eina nótt í Keflavík, má ég ekki kalla það ferðalag?? :Þ Hérna er ein góð frá því við fórum á Hrafnabjörg síðasta sumar, ég, mamma, María og Erla frænka. Ótrúlegt hvað maður er happy uppi á fjalli í dempandi rigningu og roki (btw þá var gefin út stormviðvörun þennan dag). Mig minnir að þessi ganga hafi verið um 15 km og tekið 8 tíma og þarna erum við rúmlega hálfnuð. Bless í bili Íris sem vill komast eitthvert út

1 comentario:

Anónimo dijo...

Ég vona nú að þú komist yfir lesleiðina þína, trúi ekki öðru þegar er svona skítkalt úti...miklu betra að geta haldið sig innandyra þá :o) En ég skil þig svo vel með sumarið, trúi því alveg að það sé komið í þig, enda er búin að vera glampandi sól mest alla síðustu viku ! Gangi þér annars vel skvís...sendi þér smá af mínum lærdómsstraumum ;o)