Berlin
Ef að það eru 8 vikur og 1 dagur í Interrailið þá þýðir það að það séu 7 vikur og 6 dagar í Eyjafjallajökul :S Obbosí, mín þarf að fara að taka sig á :Þ
En jæja víst maður er farinn að telja niður þá verð ég víst líka að segja að í dag eru 2 vikur í fyrsta prófið mitt og 4 vikur þangað til að prófin eru búin og ferli mínum sem spænskunema formlega lokið (allaveganna í bili). Kannski fer ég aftur í spænsku eða tek meiri sálfræði haustið 2007 því Orri verður þá að taka síðustu önnina sína en ég verð búin að útskrifast með BA svo kannski ég nýti bara þá önn í að hanga aðeins lengur í skólanum í staðinn fyrir að fara að vinna 100% starf *hrollur*
Ég er búin að vera í vinnunni í 2 tíma og það eru 4 tímar eftir :Þ Þá er planið að hendast í IKEA og kaupa eitthvað :Þ Ég er algjörlega komin með ógeð á öllu dótinu sem ég á ! Eitthvað vorhreingerningarbrjálæði býst ég við. Seinna í dag kemst ég svo vonandi í gönguna sem ég ætlaði í í gær en var frestað vegna veðurs og syfju hjá ákveðnum aðila :Þ Ég verð víst líka að klára að taka til í íbúðinni eftir að ég tók til um daginn, hún er nefnilega ennþá í rúst Orra til mikillar mæðu :Þ
well á maður að fara og vinna smá :Þ Ég á örugglega eftir að skrifa nokkrar færslur hérna á morgun, verð víst í vinnunni í rúma 12 tíma svo ég þarf að gera eitthvað til að stytta mér stundir ! :D


No hay comentarios.:
Publicar un comentario