martes, 11 de abril de 2006

arggargbölvogragn

Ert þú einn af ösnunum sem kunna ekki umferðareglurnar og svínar reglulega fyrir mig á gatnamótunum á Rauðarárstíg og Laugavegi ?? !! ?? Ég veit að þessi gatnamót eru svolítið skrýtin en ef þú ert að keyra niður Rauðarárstíginn og ætlar að beygja inn á Laugaveginn, þá átt þú EKKI réttinn heldur umferðin sem að er að keyra beint upp Rauðarárstíginn. Vinsamlegast vertu ekki með þessa helv%&# frekju því að næst þá ætla ég ekki að stoppa og keyri bara í hliðina á þér !! Ég svo lofa ! Sama með ykkur asnana á leiðinni niður Laugaveginn, ef að það er allt stappað og stopp hinum megin við gatnamótin EKKI keyra þá inn á þau og og vera svo strand þar þegar rauða ljósið kemur !! Það er bara plein stúpid !! Úff jæja mér líður mun betur núna ... þetta er búið að byrgjast inni alla síðustu mánuði :Þ En að einhverju gleðilegra þá skelltum við Orri okkur á Hótel Keflavík síðustu nótt :Þ Mamma og pabbi gáfu okkur gjafabréf og þetta var algjört æði :Þ Fengum svaka flott herbergi og æðislegan kvöldverð :D Gaman að fá stundum tækifæri til að gera eitthvað svona nýtt :) Annars er ég hundlöt og léleg þessa dagana :( Ég borðaði nammi í gær eftir að hafa ekkert borðað í 20 daga ! Nú þarf maður víst að byrja að telja aftur frá 0 :( Verð reyndar að byrja að telja á morgun því ég er líka búin að borða nammi í dag :( Svo hef ég ekki farið í ræktina í viku :S Ég ákvað að hægja aðeins á af því mér var svo hrikalega illt í fótunum en í staðinn fyrir að hægja á þá bara hætti ég að mæta :S En það verður líka tekið á því Á MORGUN :Þ

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Vona að þessi svínaskilaboð komist til réttra aðila ;o) yndislegt að geta átt svona stað til að fá útrás stundum ! En hvað er að heyra með nammibannið, þú hefur haft svo góð áhrif á mig að ég er ekki búin að borða nammi í 3 daga, en reyndar hef gert samning við mig að éta smá páskaegg þann 16 ! Anyways bestu kveðjur og knús til þín !

Íris dijo...

hehe já þetta bara ruddist út, ég gat ekki lengur haldið þessu inni eftir að það var gerð enn ein tilraun til að klessa á mig á þessum blessuð gatnamótum :P

En ég ætla að byrja sterk aftur í nammibanninu mínu á morgun (dagurinn í dag ónýtur líka), skella mér í ræktina og taka mataræðið aftur föstum tökum :Þ
Gaman að geta verið innblástur fyrir þig einu sinni af því það hefur nú yfirleitt verið öfugt :*

Anónimo dijo...

Nammibannið stendur enn sem komið er ;o)
En ég verð heima allann föstudaginn langa svo á sunnudaginn(the birthday-day)þá verð ég eitthvað heima, fæ súkkulaðiköku alla mamma ;o) þannig að þú mátt endilega kíkja þá og fá þér bita ;o) en endilega láttu bara heyra í þér skvís :o)

Anónimo dijo...

Jamm, ég hef lent í þessu á þessum nákvæmlega sömu gatnamótum, fyrst var ég mikið að spá í því hvort að það væri eitthvað beygjulós eða biðskildumerki sem ég hafði ekki tekið eftir sem veitti hinum bílunum forgang en sá fljótt að svo er ekki. Annars er mitt arggargbölvogragn fólk sem gefur ekki stefnuljós á leiðinni út úr hringtorgum þegar það er fullt af bílum að bíða eftir að komast inn á torgið.