Já humm er ekkert búin að skrifa í nokkra daga ekki af því ég hef verið svo upptekin við að læra heldur bara af pjúra leti :Þ
Síðast þegar ég skrifaði vorum við mamma á leiðinni í svaka göngu, því miður þá fórum við ekki af því veðurspáin var frekar leiðinleg, 19 m/s, rigning og 2°C hiti :S Já hljómaði ekki spennandi :S
Síðasta vor þegar ég átti að vera að læra fyrir fyrsta prófið þá horfði ég á ALLA 2. seríuna í One Tree Hill ! Núna þá er ég búin að endurskipuleggja Ipodinn minn út í gegn, ná mér í helling af nýjum lögum og guð hvað þetta er búið að taka mikinn tíma :Þ Já tíma sem ætti kannski frekar að fara í lestur : / Ég virðist bara ekki finn í mér eirðina til að sitja og læra þessa dagana :S Langar mest af öllu að hanga bara í ræktinni eða storma á einhver fjöll :P Það er bara greinilega komið alltof mikið sumar í mig og ég er meira að hugsa um að koma mér í form fyrir Eyjafjallajökul en að einbeita mér að því sem er næst: P R Ó F I N
Þetta er ein ómerkilegasta bloggfærsla sem ég hef nokkurn tímann skrifað ... hef greinilega ekki mikið að segja þessa dagana :Þ
-Íris gönguglaða sem er á leiðinni á Haukafjöll á eftir-
miércoles, 26 de abril de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Hmmm ekkert innantóm færsla hjá þér.... alveg nauðsynlegt að skrifa inn nokkrar línur svona til að ná contact við umheiminn þegar meður er að lesa fyrir próf, þó að þær línu fjalli ekki um neitt :o) En þú kemst yfir þessa lesleiði, dettur í gítinn tímanlega fyrir próf...sannaðu til :o)Sendi þér allavega góða strauma !
Publicar un comentario