Eigum við ekki að vona að þessi skíni sem mest næstu mánuðina :D
Jæja sumardagurinn fyrsti kominn og ég vaknaði með sólina í augunum :D mmm ég elska vorið og sumarið. Loksins get ég farið í allar göngurnar sem mig er búið að dreyma um allan veturinn og ég þarf ekki að dúða mig frá toppi til táar til þess eins að hlaupa út og inn úr bílnum :)
Jæja sumardagurinn fyrsti kominn og ég vaknaði með sólina í augunum :D mmm ég elska vorið og sumarið. Loksins get ég farið í allar göngurnar sem mig er búið að dreyma um allan veturinn og ég þarf ekki að dúða mig frá toppi til táar til þess eins að hlaupa út og inn úr bílnum :)
Í gær fór ég í fyrstu gönguna með Útivistarræktinni þetta árið. Þetta var hin fínasta ganga þar sem gengið var frá Flekkuvík að Keilisnesi og svo bara til baka. Aldrei þessu vant var ekkert verið að storma á nein fjöll heldur var þetta kósíheita jafnsléttu ganga :)
Ég er búin að vera í miklum pælingum með hárið á mér (sem ég virðist aldrei geta verið sátt með :Þ) Er búin að hugsa um þetta síðustu daga, toppur ekki toppur, safna eða klippa styttra and who knows what else EN svo rann það allt í einu upp fyrir mér að það er eins gott fyrir mig að halda því bara eins og það er og láta blessaðann toppinn vaxa svo að vonandi komist það bara allt í tagl fyrir sumarið ! Ég þarf nefnilega víst að lifa af í 6 vikur hárblásara- og sléttujárnslaus svo það er eins gott að vera ekki með einhverja fancy klippingu sem krefst mikillar vinnu :Þ
En heyriði er ENGINN sem er til í að koma með mér á Eyjafjallajökul !!??!! Ég alveg treysti á mömmu en hún verður víst í útlöndum :( og þetta er nú ekki eins skemmtilegt þegar maður fær ekki að deila því með einhverjum ... HÉRNA er hægt að sjá ferðaplanið og svona helstu upplýsingar. Þetta verður hörkuferð og á eftir að reyna á en svo þess virði þegar maður er búinn :) Kannski að mér takist að blikka Orra til að koma með mér :Þ
En jæja er í vinnunni eins og svo oft áður, á morgun er planið að reyna að versla einhver föt, æfa smá, kíkja kannski í ljós og taka loka dekur/hangs/tímasóunar dag áður en prófalesturinn hefst á laugardaginn !
Gleðilegt sumar
ÍÓ

3 comentarios:
Sorrý - að ég verði í útlöndum :-( Var orðin heit á að skella mér með þér þegar ég fattaði það. En ég mæli algjörlega með jöklagöngum, hef reyndar bara farið í eina en hún var einstök upplifun! Og já, gleðilegt sumar Íris mín.
Mamma :-)
Gleðilegt sumar skvís :o)
Ég hugsa að ég meiki ekki jökulgöngu, ekki miðað við mitt gönguþol *roðn* held að ég þurfi heldur betur að efla það áður en ég legg í svoleiðis :o) En annars væri ég sko alveg game :o) Hafðu það gott í dag !
Hey Rebekka þú ert alltaf velkomin með í mipvikudagsgöngur hjá Útivistarræktinni. Þær eru ókeypis og eru hugsaðar fyrir alla ekki bara þá sem eru vanir að þramma á fjöll :D
Publicar un comentario