Er ekki málið að blogga þegar maður nennir ekki að læra :Þ Sit á hlöðunni og er í augnablikinu ein og yfirgefin þar sem stelpurnar fóru í TÍMA ! Ég læt ekki hafa mig út í svoleiðis vitleysu og sit því hér sem yfirfartölvupassari ... :Þ
Ég gerði algjörlega útaf við mig í gær ... tók þennan svaka pallatíma, nánast dó úr þreytu þegar ég þurfti að labba heim eftir hann og svo skellti ég mér í göngu upp á Haukafjöll um kvöldið. Veðrið var reyndar G E G G J A Ð sól og blíða og eiginlega bara heitt, aldrei þessu vant var maður í því að klæða sig úr fötunum en ekki í þau :Þ Yndið mitt hún María kom með mér og við skemmtum okkur stórvel. Ég tók slatta af myndum en svo virðist sem að yfir mig hafi komið smá ljóta en það verður bara að hafa það, það er erfitt að vera sætur, sveittur og þreyttur uppi á fjalli ;)

Jæja ég fann loksins kraftinn til að byrja að læra af viti eftir að hafa setið í gær og reiknað út fram og til baka hvað ég þyrfti að fá í einkunn í þeim kúrsum sem ég á eftir til að ná 1. einkunn og ÓMEN við erum að tala um milli 7,5 - 8 í öllu :S ! Öss ég hefði átt að vera svolítið smart fyrir og taka spænskuna af meiri krafti því þá hefði hún getað híft meðaleinkunnina betur upp en hey ég var víst ekki búin að ákveða þetta áður svo það verður bara að hafa það ... Annars er ég ósköp fegin að vera að fara í sálfræðina, þar get ég að minnsta kosti skrifað texta án þess að fá athugasemdir út á forsetningar og sagnabeygingar :Þ
-Íris ofurnörd kveður-
Við erum komnar með gistingu í Köben :D

1 comentario:
Jáhá þetta er án efa ein skemmtilegasta svona styttri ganga sem ég hef farið í:)
Publicar un comentario