domingo, 12 de marzo de 2006

orðin 22 ára ellikelling

Þá er maður orðinn 22 ára !! Takk fyrir allar kveðjurnar og símtölin :* Rebekka verður nú samt að fá alveg sérstakar þakkir því hún mætti heim til mín með pakka :D :* Ég átti fínan afmælisdag, kúrði heima til hádegis og þurfti þá að fara aðeins upp í skóla að vesenast, eftir það fór ég í bakarí og fékk mér snúð :P Eftir hádegi brunaði ég svo inn í Hafnarfjörð þar sem María var heima veik, hún var búin að gera miniafmælisveislu handa mér og ég fékk að blása á kertin :Þ Seinni partinn kíkti Rebekka svo til mín og við spjölluðum saman um allt milli himins og jarðar :D Kvöldið var svo bara hið rólegasta, dýrindis matur hjá M+P, kíktum svo aðeins til Pésa og svo þurfti ég að keyra haugfulla drengi niður í bæ ! Ekki það skemmtilegasta þegar það snjóar eins og aldrei áður og ég sá ekkert út um gluggann :Þ Laugardagurinn varð þó eiginlega enn betri, ég fékk svona seinni afmælisdag af því Orri þurfti að vera í skólanum allan föstudaginn og við gátum því ekkert gert saman. Við byrjuðum daginn hjá Maggý ömmu hans og borðuðum þar morgunmat með báðum ömmum hans (sem búa eiginlega bara hlið við hlið :Þ) Svo eyddum við restinni af deginum bara saman, kíktum í Glæsibæ, fengum okkur ís í Álfheimum og fórum svo í Kolaportið ! Ég hef ekki farið í Kolaportið í MÖRG ár og það var bara mjög gaman, keyptum 3 geisladiska og 2 bækur. Önnur bókin var með myndum frá Reykjavík milli 1880-1930 og svo aftur 1985 og mér fannst hún svo flott, það er svo gaman að sjá hvernig Reykjavík hefur breyst. Það voru t.d. myndir af Skólavörðustígnum og Hlemmi frá aldamótunum þarsíðustu og það var alveg magnað að sjá hvernig það var bara EKKERT þarna þar sem þetta er miðbærinn í dag. Um kvöldið fórum við svo í 2x fertugsafmæli í Keflavík, við reyndar stoppuðum ekki lengi af því ég þurfti að mæta í vinnuna í morgun. Svo næstu helgi verður næsta afmæli, ég og Orri ætlum að reyna að fara á hótel þá en það virðist ekki ætla að ganga upp...

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Flott kaka ;)

Anónimo dijo...

Til hamingju með föstudaginn, aftur ! Gaman að þér skyldi lítast vel á sokkana :o) Vona að þeir komi að góðum notum ! Þakka þér svo kærlega fyrir spjallið á föstudaginn :o) gaman að sjá framan í þig.

Anónimo dijo...

Þú ert SVO geggjuð Íris hahha

Anónimo dijo...

Til hamingju með afmælið! Ég steingleymdi þessu, sorry kv. Hildur sál