viernes, 31 de marzo de 2006

mér dettur aldrei neitt í hug til að setja hérna

Dagur 10 og ég er enn í hollustunni ... Djö. hvað er þetta er boring ! helvítis heilsa endalaust :Þ En hvað segiði, hvað þarf maður að halda sig lengi algjörlega frá nammi til að komast yfir sykurfíknina?? 2 vikur - 3 vikur ??? jú tell mí ! Svo er ég búin að vera ansi dugleg að sprikla í ræktinni :Þ Pallatímar, Kickbox, yoga, Dirty Dancing og Body Shape ... Reyndar mæti ég mest bara í pallatímana og jógað. Ég held að því miður verði ég að hætta að mæta í Kickbox í e-n tíma (kannski bara fram á haust :S). Ég fæ alltaf svo brjálaða verki frá hné og niðrúr bókstaflega :S Beinhimnubólga og svo eitthvað annað ... ég svo sver það að ég er með harðsperrur í iljunum eftir tímann ! En jæja þá mæti ég bara í elsku pallatímana mína, mér finnst þeir líka svo skemmtilegir :Þ Og hey það er ekki eins og maður taki minna á þar, ég fór með púlsmæli í tímann um daginn og á meðan verið var að gera æfingarnar á pallinum þá var púlsinn á mér í 185-190 !!!! Ég vissi ekki einu sinni að hjartað í mér gæti slegið svona hratt ! Hmmm já sá einhver Ungfrú Reykjavík í gær ?? Af hverju í ósköpunum eru þær látnar dansa svona mikið :S !! Þær eru ekki pro dansarar svo þetta verður aldrei neitt sérstaklega flott og þær voru bókstaflega dansandi allan tímann ! Hvað varð um það að LABBA bara framogtilbaka á sviðinu og búið ... maður þarf ekki að sjá þær sveifla sér á nærfötunum :Þ Annars til hamingju Jóna Kristín, glæsilegt að Hafnfirðingur vinni þetta :Þ -Íris out-

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Þú verður aldeilis komin í fantaform þegar þú gengur á Eyjafjallajökul...ekki spurning eftir alla þessa tíma ! Ekkert smá dugleg, ég er ekkert smá stolt af þér og líka að halda út nammibannið ! Go Girl :o)

Anónimo dijo...

Hehe já ég held að það sé sko meira en að segja það fyrir svona nammigrís eins og þig að hætta í namminu - flott hjá þér;) Nú fara nammisveppirnir í maganum síminnkandi - eins og mamma myndi segja;)

Anónimo dijo...

sammála þessu með ungrfú rvk, ég var nú meira segja á staðnum (að vinna) og þetta leit ekkert betur út þar. Og hvað með það að auglýsa stanslaust að þær hefðu farið í brúnkumeðferð sem var nú ekki glæsilegri en það að þær voru með hvítar línur undir rasskinnunum. Fegurðarsamkeppnir eru ekki alveg að meika það í mínum huga.

Anónimo dijo...

Ohh...íris, þú lætur mig fá samviskubit með þessu hollustudæmi..;)
og þú veist ég er sammála með þessa ungfrúdansandiísland keppni