Össs nammibannsdagur númer 4 og I'm going strong ! :Þ Þið getið ekki ímyndað ykkur hvurslags afrek þetta er fyrir nammibanann mig ! Ég svo sver það að á hverju einasta kvöldi kemur yfir mig þessi brjálaða súkkulaðiþörf og henni fylgir smá rödd sem hvíslar að mér að rölta út í 11-11 og kaupa allt það súkkulaði sem ég hef efni á :Þ en nobb nú er komið nóg :Þ
Það þýðir víst lítið að ætla að labba upp á Eyjafjallajökul í lélegu formi og er þá ekki líka lélegt að labba upp á Eyjafjallajökul sem bolla *hummhugsihugs* Það kemur í ljós hversu gott form maður verður kominn í þegar að þessu kemur, vonandi bara sem bestu því annars sé ég fyrir mér að ég verði grenjandi af þreytu alla leiðina upp :Þ Annars eru allir að beila á mér og ætli ég endi ekki á því að fara ein í þessa göngu, eða kannski ekki beint ein, heldur ein með hópnum:Þ
Útivistarræktin byrjar 12. apríl og það eru þónokkrar spennandi göngur fram að sumrinu sem maður verður nú að skella sér í, aðrar eru svo minna spennandi eins og t.d. Helgafellið í Hfj sem ég hef gengið á svo skrilljón sinnum og ég hef farið allar leiðir upp og niður þetta fjall, hringinn í kringum það og ég svo sver það að það eina sem ég á eftir er að labba afturábak upp ..en ætli ég geri það :Þ Ef einhverjum langar að rölta með mér á fjöll á miðvikudagskvöldum eftir 12. apríl þá ertu velkomin(n) :D
En jæja þar sem ég hætti að borða nammi þá hef ég þurft að spá aðeins í því hvað ég á að borða (því svo virðist sem ég hafi ekkert annað borðað en nammi :S :Þ)
Mér finnst alveg undarlega leiðinlegt að útbúa mér mat en ég er nú að reyna að taka á því. Ég er samt svo heppin að eiga kærasta sem að þolir alla mína matardynti (eða hvernig sem maður skrifar það). Ég er nefnilega svolítið erfið í þessum málum og borða svo sannarlega ekki hvað sem er. Á mínu heimili er nefnilega ástandið þannig að þegar það er farið í búð þá verslum við Orra mat og svona dót til heimilisins í Bónus en svo storma ég í Hagkaup til að kaupa mat handa mér :Þ Ég kaupi nánast bara lífrænt ræktaða ávexti og alls kyns hollustugotterí sem mér finnst best :Þ og svo kaupi ég brauðið mitt bara í Bakaríinu í Grímsbæ því hráefnið þar er lífrænt ræktað og ég get fengið ger og sykurlaus brauð :Þ
haha ó mæ þið haldið örugglega að ég sé nuts ... já ætli ég sé ekki bara nuts :Þ Mér finnst bara "venjulegur" matur ekkert góður, mamma hefur greinilega vanið mig á alltof hollan mat :Þ
Jebb þannig að þannig eru öfgarnar, ef ég er ekki að borða súkkulaði í öll mál, þá er það bara lífrænt ræktaðar mandarínur, lífrænt ræktaða brauð með spægipylsu og osti (sem má reyndar alveg kaupa í Bónus) og te-ið mitt úr Maður lifandi !
Jebb það mætti halda að maður væri milli !
sábado, 25 de marzo de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

2 comentarios:
ég hefði betur átt að sleppa að lesa þessa færslu... Búin að sitja á rassinum í allan dag að læra og borða ENDLAUST mikið nammi... Mar fær heldur betur samara þegar mar les um allan þennan heilnæma mat sem þú lætur ofan í þig :S
Kristín L
Dúlleg stelpa :) Ég þyrfti eila að fara í svona "ekkert gos nema um helgar" bann og "ekki naga neglurnar, aldrei aftur!"bann. You're an inspiration to us all! Hvernig er annars beinhimnubólgan? Fellur kickbox undir það að taka því rólega? Annars er ég til í miðvikudagsgöngur, er reyndar upptekinn 12.apríl en ég er til að skreppa þann 19. :)
Publicar un comentario