lunes, 27 de marzo de 2006

Jón spæjó

Næstsíðasta vikan af skólanum byrjuð :S og mér finnst önnin bara rétt vera farin af stað ! Hvernig fer tíminn að því að líða svona hratt :S Ég er bara nýbyrjuð í spænsku en áður en ég veit af eru báðar annirnar búnar og ég á leiðinni í sálfræðina aftur ... þetta er alveg ótrúlegt. Ég hef afrekað það að mæta ALDREI í fyrirlestrana í einum kúrsinum og 1 sinni í annan og svo held ég að í þeim þriðja þar hafi ég mætt 3 svar :S Svo er ég í einum öðrum kúrs þar sem ég hef nú reynt að mæta sem oftast :Þ Nýjasta æðið hjá mér þessa dagana eru spæjaraleikir þar sem maður á að reyna að leysa glæpi :Þ Það versta er að ég er alveg með eindæmum léleg í þessum leikjum, hef enga þolinmæði og kemst aldrei að réttri niðurstöðu :S eeennnn þetta er samt svo skemmtilegt :Þ Bæ í bili Íris spæjó (ekki spægipylsa samt)

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Þökkum bara fyrir að það er ekki mætingarkladdi í spænskunni ;o) hehehehe...skemmtu þér vel í spæjaraleikjunum...hvaða leikir eru þetta annars ?...mjög forvitin :o)

Anónimo dijo...

Hæja elsku besta stóra systirin mín;) Hér með er þér og Orra formlega boðið í afmælið okkar stelpnanna á Ara í Ögri þann 8.apríl, klukkan 20:00!! Hlakka mjög til að sjá þig (þar sem við hittumst ekki mikið þessa dagana:/) Kærlig hilsen Guðrún María, Unnur og Vala Dís:)