Hellúúú já ég er á lífi ! Úff ég skil ekki þessa bloggleti, ég bara hef ekkert merkileg né ómerkilegt að segja :P
Þessi vika er búin að líða í skólastressi, harðsperrum og leti ! Ég er rétt svo í dag að losna við harðsperrurnar eftir Esjuferðina miklu síðasta sunnudag :Þ Við komumst hvort sem er örugglega ekkert á Esjuna í bráð aftur, strax á mánudaginn var hún orðin snjóhvít.
Í gær átti svo megakrúttbabeið mitt hún G. María afmæli ! Hún er orðin tvítug (núna finnst mér ég vera orðin hryllilega gömul :S Hún á bara að vera 18 ára og ÉG á bara að vera tvítug :Þ) En alla veganna það var heljarinnar veisla í gær heima hjá mömmu og pabba. Til hamingju enn og aftur dúllan mín :D Hún er núna orðin velgræjuð og fjármögnuð fyrir interrailið í sumar :P
Hérna er svo mynd af gerpinu í tilefni dagsins (í gær:Þ)
Ég hef annars bara haft það fínt, var allan fyrri hluta vikunnar að djöflast við enn eina leiðindaritgerðina ... en ég er búin að skila henni af mér þannig núna er maður bara að vinna í næsta verkefni sem ég þarf að skila á morgun ... oooooggggg svona fyrir þá sem að þykir vænt um mig þá skuluð þið muna að senda mér hamingjuóskir í síma 8247470 á morgun og svo fyrir þá sem vilja gefa pakka þá vitiði hvar ég bý ;)

3 comentarios:
Hæ til hamingju með 22 afmælið gamla... Vona að þú eigir góðan dag ;)
Og til hamingju með afmælið Guðrún María 8 mars :)
Kær kveðja
Kristín Laufey
Til hamingju með afmælið skvíza
Takk fyrir pjása og Krístín Laufey;)
Publicar un comentario