lunes, 6 de marzo de 2006

Ganga 101

Jæja gönguárinu 2006 hefur formlega verið startað :D Ég og Orri fórum á Þverfellshornið í gær í geðveiku veðri ! Það var alveg slatti af fólki þarna á ferðinni og bílastæðið nánast fullt ! Það er sko ekkert grín að fara með Orra í fjallgöngu, þetta er bara eins og að vera í bootcamp eða eitthvað, það eru sko ekki teknar neinar pásur til að ná andanum ! og vatnspásur þeim má bara gleyma ! Ég er reyndar búin að finna lausn á því vandamáli :Þ Síðasta sumar þá keypti ég mér snilldar dagspoka, hann er með hólfi inni í pokanum fyrir vatnspoka og svo gat á toppnum til að leiða út slönguna, svo er slangan bara fest við böndin á bakpokanum og þannig getur maður alltaf fengið sér sopa án þess að stoppa :Þ Ég fór að finna fyrir hælsæri þegar við vorum komin svona 2/3 af uppleiðinni, ég skil ekki af hverju en jæja .... ég er samt svo þrjósk að það kom ekki til greina að snúa við svo upp fórum við :Þ En alla veganna þá vorum við sæl og þreytt þegar við komum niður og núna get ég ekki farið í skó og ég er með massívar harðsperrur í lærunum ! það gerist þegar maður skokkar niður Esjuna ! Jæja það verður víst skrópadagur í skólanum í dag :S Ég þarf að fara að vinna kl. 15 og missi því að aukatíma sem er seinnipartinn .... vona bara að ég nái að komast eitthvað áfram með þessa ritgerð sem ég á að skila á miðvikudaginn :S Og annað, djöfull hata ég að gera skattskýrsluna mína ! Hún er nú frekar einföld í ár en þessi íbúðalán og vaxtatekjur og kjaftæði gerir mig alveg crazy ! Ég bara skil ekkert í þessu :S og núna er ég búin að senda mína skýrslu inn og ég er svo hrædd um að hún sé eitthvað vitlaus :S Hasta luego - la negrita

1 comentario:

Anónimo dijo...

Ég verð mjög geðvond ef ég fæ ekki smá púst á milli, Öddi einmitt reyndi að draga mig áfram án þess að pústa smá þegar við löbbuðum á Keili og hann hefði betur átt að halda sér saman ;o)
Ég er svo sammála með þessa skattaskýrslu, ég hata að gera þetta helvíti þó þetta sé ekki neitt flókið...bara leiðinlegt af því að ég veit ég þarf að gera þetta ;o)