Jebb ég er komin aftur :D langar að blogga frítt og á eldrefinn minn .... verð víst bara að sætta mig við broskallaleysið :Þ
Hvað er málið með fólk sem að stelur úr þvottahúsum?
Ég er ekki alveg viss um hversu mikið af fötum hefur verið tekið af okkur en það er nú samt sem áður alveg nóg, tvær uppáhaldspeysurnar hans Orra eru horfnar ! og svo hhmmhmmm nærbuxur af mér *roðn* ætli einhver krakkinn sé að flagga þeim einhvers staðar :Þ
Ég er nokkuð viss um að þetta sé ekki einhver hérna úr húsinu, við erum ekki þau einu sem hafa misst föt, veit alla veganna um einn annan því hann setti auglýsingu niðri til að auglýsa eftir þeim, það gætu alveg verið fleiri ég bara hitti aldrei neinn sem að býr hérna ....
Þannig að þetta hlýtur þá að vera fólk sem að labbar inn í blokkina og labbar út aftur með föt af okkur ! Það er því miður þannig að sumar hurðar hérna eiga það til að lokast ekki eða að sumir hérna gleyma/nenna ekki að loka þeim :S og þá getur náttúrulega hver sem er valsað hérna um sameignina :S
Hvað er málið með Biblíu fallega fólksins ??
og hvað er málið með þennan Gilzeitthvað ! Jesús kristur ef að útlitsdýrkunin er ekki að drepa manninn, sá á eftir að lenda í krísu þegar rassinn á honum fer að síga og typpið skreppur saman :S Annars skrifaði Freyja (linkur hérna hægra megin) fínan pistil um þessa "ágætu" bók fyrir nokkru síðan, hún veit sko hvað hún segir stelpan !
Hvað er málið með fólk sem leggur illa í stæði ???
hehe nei ég nenni sko ekki að koma með þessa ræðu einu sinni enn ... þið vitið hvað mér finnst :Þ

3 comentarios:
Æi sorry, mig vantaði bara svo rosalega peysu...
En með gilzenegger þá vona ég að þetta sé nú að einhverjum hluta leikið hjá honum. Ég get allavega hlegið af sumum frösunum sem hann notar, en guð hvað ég vona að hann sé ekki svona allan daginn, þá er örugglega frekar erfitt umgangast hann..
Ég sem var búin að breyta linknum á þig á síðunni minni...jæja ég breyti þá bara aftur
En með Gilzenegger þá er þetta karakter alveg eins og Silvía Nótt svo ekki taka hann of alvarlega (veit þó ekki hvernig gaurinn sjálfur er)
Ég verð því miður að segja þér það að þín ástkæra systir er ein af þeim sem kann EKKI að leggja í stæði því að vísifingurinn minn er stærri en baugfingur!!! (eða kannski vegna þess að ég get ekki með nokkurn mun fengið tilfinningu fyrir því hversu stór kagginn hann Honda er:/:P)...Já svo fólk sem kann ekki að leggja þarf ekki að vera svo slæmt - takk fyrir;)
Publicar un comentario