Ég er haldin bloggleiða ! Ég hef bara haft svo mikið að gera síðustu dagana að ég hef ekki haft tíma til að blogga og ef ég blogga ekki á hverjum degi þá nenni ég þessu varla yfirhöfuð eeeeennn ég ætla að halda smá áfram, sjá hvort blogggleðin komi ekki aftur (3 G í röð !)
En alla veganna ég er búin að eiga góða daga :P Á fimmtudaginn var ég svaka dugleg og mætti með Kristínu í pilates kl. 9 :D svo var planið að mæta í próf eftir hádegi en ég áttaði mig á því að ég þyrfti að skila ritgerð eftir minna en viku og ég væri ekki byrjuð svo að stefnan var tekin á Hlöðuna þar sem ég sat straight í 6 tíma og fór í gegnum heimildir og náði að byrja aðeins ! Ég hef ekki setið svona lengi á Hlöðunni í einu alla þessa önnina .... ahh ef ég hugsa um það þá held ég að ég hafi bara ekkert farið á Hlöðuna yfir höfuð alla þessa önn :S Um kvöldið fórum við Orri svo til Maggýjar ömmu hans og fengum æðislegan fiskrétt :P
Gærdagurinn var enn betri :P Ég svaf pent yfir mig og missti af 3 tímum :P ákvað að bæta það upp með að skella mér í pallatíma sem ég gerði, ég rölti svo heim eftir pallatímann og ég sver það að þegar ég kom heim þá átti ég ekki eftir eina einustu örðu af orku, ég settist niður og bókstaflega gat ekki hreyft mig eeeenn ég neyddist til þess því við stelpurnar spænsku vorum búnar að plana skautaferð :P Á endanum fórum við bara 3, ég, Sylvía og Sigrún, því Kolla beilaði :P en við 3 sýndum af okkur einstaka skautahæfileika :Þ
Um kvöldið var svo farið á Rossopomodoro og borðað með allri spænskudeildinni, svona árshátíðarmáltíð :P ógeðslega góður matur !!
Eníhú seinna um kvöldið skelltum við fjórar okkur svo til Sigrúnar og enn seinna um kvöldið skelltu þær skvísurnar sér á ball á Hótel Sögu en ég var beiler og fór heim. Planið var að fara að sofa en það tókst ekki fyrr en um kl. 3 :Þ
En alla veganna í alla staði frábær fimmtudagur og föstudagur :Þ
Það sem eftir er helginnar bíður mín hinsvegar ekkert nema vinna og lærdómur ... nema kannski að ég og Orri komumst upp á Esjuna á morgun en það er planið svona ef að veður leyfir :D
Jæja chaooooo ---- og aumingja þið sem að komust í gegnum þessa vitleysu sem þessi texti er ...
sábado, 4 de marzo de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Já vá, ég hef ekkert farið á hlöðuna heldur þessa önnina... og já, við erum sannar skautadrottningar ;D
hehe, við kannski skellum okkur einhvern tíman á skauta í staðin fyrir pilates eða ræktina, svona víst þú ert að lýsa yfir skautahæfileikum þínum ;) Fúlt að komast ekki með þér á Esjuna á eftir en ég er ennþá kvefuð!!! Best að láta það batna almenilega fyrst... vona bara að það verði svona gott veður aftur á næstunni.
Kíktirðu á Esjuna um helgina ? Ég afrekaði það að ganga Keilir á laugardaginn, í þessu geggjaða veðri...ógeðslega gaman :o)
Publicar un comentario