martes, 14 de marzo de 2006
bloggleiði, bloggleti og mögulegir bloggflutningar
Ég er að reyna að gera upp við mig hvort að ég eigi af hætta að blogga eða kannski færa mig bara eitthvert annað ... Mér finnst svolítið leiðinlegt að geta ekki gert broskalla hérna :S
Annars ætti maður kannski bara að hætta þessu, það er lítið merkilegt að gerast þessa dagana og örugglega mun skemmtilegara að blogga þegar maður verður á ferðinni í sumar ... en jæja ég ætla að spá og spekúlera aðeins meira :Þ Ég er búin að opna blogg á 123.is svona til að prófa það er www.123.is/naguara síðan er reyndar læst en lykilorðið er bara brandari if u know me at all !
Fyrir utan þetta þá er lítið að frétta ... mætti 2x í ræktina í dag, fór í pilates í morgun en þessir tímar eru farnir að fara svo í taugarnar á mér að ég labbaði bara út í miðjum tímanum, ég hef verið með eitthvað keis af morgunfýlu :P En jæja eftir þetta þá fór ég út í búð og keypti mér risapoka af Minstrels og ÁT HANN ALLAN !!! ómæ. En jæja restin af deginum leið bara á meðan ég sat í sófanum, lærði, svaf og hékk í tölvunni !! Ég ákvað að þetta væri ekki alveg nógu gott svo ég dró Kristínu (AFTUR) með mér í ræktina og við fórum í Brennslukickbox ! I'm in love !!! Vá þvílíkt púl og ég ætla sko aftur, þetta var æði !
En jæja kveð í bili og spurning hvort ég mæti næst aftur hér eða hinum megin á 123, kemur í ljós
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

2 comentarios:
okei þú mátt skipta um bloggsíðu en plíís ekki hætta... mér finnst so gaman að lesa Bloggið þitt:)
Íris ég tel mig þekkja þig nú nokkuð mikið en mér tókst nú ekki að gera leynið:/!!!! Þrátt fyrir MARGAR tilraunir!!!
Publicar un comentario