- Númer 1: Ég er búin að elda kvöldmat öll kvöld, og sko ekkert crap heldur bara góðan alvöru mat (semsagt ekki kínarúllur)
- Númer 2: Er búin að borða hollan og góðan mat og það að ég borði núna almennilegan kvöldmat hefur sko hjálpað til því mér finnst svo leiðinlegt að fá mér að borða og borða þess vegna næstum því alltaf bara það sama :S Er reyndar algjör kvöldmaulari og það skemmir nú svolítið fyrir :Þ
- Númer 3: Ég er búin að fara í ræktina síðustu 5 daga og er á leiðinni á eftir ! Nýtt met 6 sinnum í röð ! Hmm já nei kannski ekki alveg, sumarið 2002 þá fór ég í sund x3 í viku, jóga x3 í viku og fjallgöngu alla sunnudaga ! Ég var ekki einu sinni að reyna að koma mér í form eða grennast, þetta var bara svo gaman :Þ
- Númer 4: Ég er búin að vera að LÆRA ! Vinna upp gamlar syndir og dýfa mér ofan í hrúguna af bókum sem ég var ekki einu sinni búin að opna :Þ
Eg held að yfirlýsingin mín með Eyjafjallajökulsgönguna verði bara að súperhvatningu :Þ Ég þarf svoooo að koma mér í form ef ég ætla bókstaflega ekki bara að deyja þarna uppi á fjallinu :Þ Þannig að um leið og Útivistarræktin byrjar í mars þá fer ég að mæta í fjallgöngur á miðvikudögum :D og það verður enginn leti í ræktinni því maður þarf víst að krækja sér í smá þol og kannski skipta smá einangrun út fyrir vöðva ;) veitir ekki af því ég hef sjaldan verið jafn vel einangruð og núna :Þ Ég ætla að miða við það að ná að ganga upp Þverfellshornið á Esjunni á klukkutíma og vera búin að jafna mig eftir gönguna upp á innan við 2 mín ! Þetta get ég alveg, veit það af því ég gat þetta fyrir 3 árum síðan :Þ Ég, Orri og Andri vorum nánast farin að skokka þetta upp og niður án nokkurar áreynslu :Þ
Jæja got2go, ætla að hitta Kristínu í Laugum og svo koma Pési og Heiða hingað í kvöld og við ætlum að taka aðra umferð í Catan :Þ
Jæja got2go, ætla að hitta Kristínu í Laugum og svo koma Pési og Heiða hingað í kvöld og við ætlum að taka aðra umferð í Catan :Þ

1 comentario:
Dugleg.is:)
Publicar un comentario