jueves, 2 de febrero de 2006

ohhh mínz svo dúlleg

Ég er búin að afkasta svo miklu í dag að ég verð eiginlega bara að monta mig :P Ég vaknaði kl. 7 af því ég ætlaði að skutla Orra í skólann svo ég gæti verið á bílnum, ég ríf mig á fætur og þegar ég er búin að klæða mig tilkynnir Orri mér það að hann ætli ekki í skólann *grrr* ég gaf honum ljótt auga fyrir að taka af mér alla veganna klst. svefn og fór svo fram að borða hafragraut Kl.9 skellti ég mér í pilates ! OMG ég var búin að gleyma hvað þetta er erfitt ! Það bókstaflega lak af mér svitinn ! og eftir tímann þá titraði ég af þreytu :Þ hmmm kannski er maður bara svona ands**** aumur :Þ Jæja eftir tímann lá leiðinn inn í Hafnarfjörð í smá beauty mission, finnst svo kósý að láta vaxa á mér augabrýrnar :Þ Eftir þetta lá svo leiðin í Smáralindina þar sem ég spreðaði 10.000 kr inneigninni sem Orri fékk í jólagjöf frá vinnunni sinni :Þ Ég hef sko ekki keypt mér föt í heila eilífð :Þ hmmm svo var það bara matarinnkaup í lífrænu deildinni í Hagkaup, lífrænt haframjöl rokkar ! ;) KB-banki og Ríkið fengu svo líka að sjá smá af mér ..... Eins og þetta allt hafi ekki verið nóg !! Ég var komin heim kl. 13:30 og sat svo og lærði til 19, eldaði þá fisk (sem ég klúðraði næstum því ekki) og ætli ég haldi ekki áfram að læra eftir að ég er búin að skrifa þessa tilgangslausu montfærslu
-Íris sem er eiginlega bara uppgefin eftir að hafa lesið þetta yfir-

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Krafturinn í þér...
Pilates, hmmm er það ekki svoldið skemmtilegt þó það sé erfitt, kítlar svoldið forvitnina mína að prófa þetta :o)

Íris dijo...

jú það er reyndar mjög skemmtilegt, tekur alveg svakalega á megann og handleggina

Anónimo dijo...

dugleg :) en eitt skildi ég ekki, mikið roslega gastu verið fljót að finna þér föt :) bara inn og út úr smáralindinni :) fúfff ég þarf alltaf að eyða alveg góðum degi þar ef ég er að finna mér föt :)

Íris dijo...

mér leiðist svo að versla ein :Þ og þá geri ég góð og snögg innkaup :P