miércoles, 1 de febrero de 2006

Mural wallpapers !

Ég geri margt til að dreifa huganum :Þ svona þegar mín bíða 2 próf og 1 ritgerð bara á næstu dagana .... Og það nýjasta er mural wallpapers ! Mig er nefnilega búið að dreyma um að setja veggfóður á einn veginn í stofunni en hafa það svona ljósmyndaveggfóður. Ég hafði bara ekki hugmynd um hvað það kallaðist á ensku fyrr en í dag (þökk sé barnalandi :Þ) eníhú hvernig lýst ykkur á ??? Persónulega þá finnst mér, af þessum myndum, svarthvíta myndin af NY æði ! En þetta veggfóður myndi kosta svona milli 40 og 50 þús kall :O Hin eru eitthvað ódýrari og eru eiginlega bara e-r myndir, veit ekki hvort ég myndi vilja hafa þær inni í stofu :Þ
Ég verð líka að þakka fyrir góð ráð hérna í síðustu umræðunni, það gæti vel verið að málið væri bara að skella sér í HR :Þ Hahaha já það væri stefnubreyting :Þ

1 comentario:

Anónimo dijo...

Sammála þér að NY myndin er langflottust! Samt skrítið að svart-hvít mynd sé mun dýrari en myndir í lit.
En ef maður er með flott veggfóður þarf maður að vera duglegur að laga til svo það sjáist ;o)