domingo, 5 de febrero de 2006

letiblogg

Jahá heilir 3 dagar á milli blogga, ég held að það sé bara persónulegt met :Þ Ég veit ekki hver ástæðan hefur verið fyrir þessari bloggleti, kannski bara það að ég hef ekkert verið að vinna :Þ En jæja þessi helgi er bara búin að vera með besta móti :) Á föstudagskvöldið kíktu Heiða og Pési til okkar og við sátum og spiluðum fram á nótt :D Það var alveg ótrúlega gaman, sérstaklega af því ég var næstum því búin að vinna :Þ Í gær var svo hinn hefðbundni "morgun"matur hjá Maggý, við mættum reyndar ekki fyrr en kl. 13 því sumir (ekki ég) gátu ekki farið á fætur :Þ Seinnipartinn fór ég svo í afmæli til sætustu skvísu í öllum heiminum, hennar Elísu Líf sem var 4 ára :* Til hamingju sæta :D Laugardagskvöldið var svo algjört NÖRDAkvöld, ég ætlaði út en ég var svoooo þreytt að ég steinsofnaði og nennti ekki eftir það, ég eyddi því kvöldinu ein heima að horfa á sjónvarpið og spila spilið sem við vorum í á föstudaginn á netinu :Þ Dagurinn í dag hefur samt verið toppur LETINNAR ! Við vöknuðum ekki fyrr en 13:30, nenntum ekki á fætur fyrr en 14:30, brunuðum á Hróa og náðum okkur í pizzu og sátum svo hérna og horfðum á OC. Svo skellti ég mér í mat í heimahúsin og fékk að hitta þar nýja gæjann hennar Maríu ;) jebbb svona er gaman hjá mér ........ Huge samviskubit af því að ég er ekki byrjuð á ritgerðinni sem ég á að skila á mánudaginn :S ÉG LOFA LOFA að byrja á morgun :Þ Ég ætla samt að gefa sjálfri mér hrós því ég mætti 5x í ræktina í vikunni :D og það er sko ansi kröftugt fyrir mína :Þ

No hay comentarios.: