miércoles, 8 de febrero de 2006

Jógadjóka

Hver sá sem hélt því fram að jóga væri ekkert nema auðveldar teygjur og undarlegar öndunaræfingar þarf sko að éta það ofan í sig ... Ég kom heim áðan titrandi af þreytu eftir jógatímann :Þ Prufið að leggjast á magann, setja hendurnar fyrir aftan bak og reyna að taka utan um olnbogana á ykkur. Reynið nú að lyfta upp handleggjunum og halda svoleiðis !! Jebb þetta gerði ég og ótrúlegt en satt þá var það mun léttara en ég hélt að ná í olnbogana :Þ Svo getiði líka prufað að leggjast á magann setja hendurnar undir ykkur með lófana niður og og þrýsta þeim í gólfið, nú skuluð þið lyfta fótunum upp. Það ætti að vera einhvern vegin svona:
l l
V Jæja, búin að skila af mér ritgerðinni svo ég er aðeins að slaka á :Þ Ætla að horfa á 24 og House og hafa það kósý með Orra Chao Íris

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Mér langar svo geðveikt að prófa jóga... en einmitt þori því ekki því ég hef heyrt það frá fleirum en thér að þetta sé bara sjúklega erfitt... :S

Íris dijo...

nei nei ekkert svo erfitt því maður gerir bara eins og maður getur :)
Komdu bara með mér í tíma niðri í Laugum ! Eru með fína tímar þar held á öllum dögum nema sunnudögum !