viernes, 24 de febrero de 2006
I wonder ....
Einhvern tímann í síðustu viku setti Orri saman playlista sem er alveg magnaður. Inn á honum er lög sem eru algjör klassík og ég er búin að hlusta á hann svo oft að ég er nánast farin að kunna lögin öll utan að. Það er alveg ótrúlegt hversu góð áhrif góð tónlist hefur á mann. Ég fór að læra ! og á meðan hlustaði ég, svo fór ég að taka til ! þessa síðustu 2 dagana hef ég tekið allt bókhaldið í gegn frá síðasta ári og tekið til á öllum þeim stöðum sem ég hef ALDREI nennt að taka til á. Annað sem svona góð tónlist gerir mér er að ég þörf mín fyrir að hafa fólk í kringum mig nánast hverfur, finnst bara best að vera ein í mínum pælingum (takandi til :Þ) ..... hmmm jæja ég er kannski crazy, kannast enginn við að líða svona?
Jæja annars fór ég út að borða á Grænum Kosti í gær með Lóu (svona í tilefni af afmælinu hennar sem var í janúar :Þ) Það er alltaf svo gott að hitta "gamla" vini sem maður hefur e-a hluta vegna alltof lítið samband við ... Við ætlum nú að bæta úr því og er stefnan tekin á pallatíma eldsnemma næsta mánudagsmorgun :Þ
Ég er enn svoooo óráðin með það hvað ég vil læra :S En núna ætla ég að gera eitthvað í því, ég pantaði mér tíma hjá námsráðgjafa á mánudaginn ... ætli ég fari ekki í áhugasviðspróf og vonandi hjálpar það mér að setja einhverja stefnu :Þ
En jæja í kvöld verður það bara ljós og bíóferð með Maríu elskunni minni. Planið var upphaflega að ég og Eydís ætluðum að hafa kósýkvöld saman hérna heima en greyið er bara veik :S
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Amk. gerði góð tónlist heimanámið í stærðfræði alltaf mun skemmtilegra og auðveldara í mínu tilfelli... og bara margt annað sem venjulega er ansi óspennandi :)
Publicar un comentario