lunes, 20 de febrero de 2006

I wonder .....

Yes enn einn mánudagurinn ! Enginn skóli í dag heldur bara vinnasminna ....Helgin var frábær, ég á þessar æðislegu léttgegguðu vinkonur í spænskunni :Þ Ég var þunn í fyrsta skipti síðan .... ja alla veganna í fyrsta skipti í langan tíma. Silvía Nótt var æði, er búin að taka frá 18. maí og stefni á að taka mér frí í vinnunni þann 19. (þar sem 18. er fimmtudagur :Þ) Ég skellti mér í klippingu áðan og ég svo sver það að alltaf þegar ég fer í klippingu hjá þessari stelpu þá spjöllum við út í eitt ! Ég veit orðið alveg helling um hana, þekki hana samt bara ekki baun og hitti hana svona á 6 vikna fresti (þegar mér dettur í hug að fara í klippingu :Þ) Ég er á fullu að vinna í Eyjafjallajökulsgönguþolinu mínu :Þ Það þarf sko major improvement til að ég komist upp á topp en hey ég hef enn rúma 4 mánuði :Þ Vá sem að þýðir að það séu líka bara rúmir 4 mánuðir þangað til að ég fer út í 6 vikur :D Jibbí ... :Þ Vil líka minna á að afmælið mitt er á næstu grösum :Þ eða sko eftir 18 daga ;) Hæstir á óskalista (fyrir utan bókina 101 fjall ) eru göngustafir af því að mínir eru bilaðir. Á óskalistanum er ekki neitt glingur en hins vegar eru föt alltaf vel þegin og mig vantar sko föt ! Einnig er alltaf seif að rölta í útivistardeildina í Útilíf og kippa einhverju með sér þar, maður getur aldrei átt of mikið af göngusokkum :Þ

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Bleikir göngusokkar...hef þá bak við eyrað ;o) hehehe...
Veistu þú átt afmæli á þannig degi að ég held að mér hafi aldrei tekist að gleyma því....ótrúlega fyndið ;o)Auðveld dagsetning að muna 10. mars !

Íris dijo...

haha ég yrði sko flottust og vinsælust meðal göngunördanna ef ég mætti í bleikum göngusokkum :D

Veistu að ég man líka alltaf afmælið þitt, það er bara stimplað inn í hausinn á mér :Þ

Anónimo dijo...

Jiii dúddi ég veit ekki hvað ég á að gefa þér!!!

Anónimo dijo...

já þessi helgi var vægast sagt skemmtileg... verðum að endurtaka leikinn von bráðar;)