Gubbgubbgubb ég er að lesa leiðinlegustu bók í heimi ! Jahh eða ekki einu sinni bók af því ég er enn bara að lesa formálann :S og hann er hörmung .... Er einhver hérna sem getur sagt mér allt um Antonio Buero Vallejo og Historia de una escalera eða gert bara enn betur og látið mig hafa ritgerð upp á svona 6 bls um eitthvað í þessari bók :) *mjögvongóð*
Annars hef ég lítið gert þessa vikuna nema að vinna og læra og já vinna og læra ! Ótrúlegt en satt þá er ég núna búin að vinna upp allar gamlar skólasyndir og er bara á réttum stað í öllum bókum :D Ég hef ekkert farið í ræktina því eftir þennan svakalega pallatíma á mánudaginn fékk ég þessar svaka harðsperrur að ég hef varla getað gengið upp og niður tröppur síðan þá (og já ég bý á 3. hæð btw). En þetta er nú nánast gengið yfir svo ég og Stína stuð ætlum í ræktina núna eftir vinnu.
Ohh ég hlakka svo til þegar þessi vika er búin, það er allt einhvern veginn úr skorðum af því ég er bara búin að vera að vinna alla daga, vakna ELDsnemma og ekkert komist í ræktina :S ! Á sunnudaginn verð ég búin að vinna 7 daga í röð og um elgina er ég að vinna aaaallllaaannn daginn ! En hey monní monní, mars verður dýr mánuður, það er árshátíð, María verður tvítug, ég og Orri bæði 22. :S og svo er ég að fara í 2x fertugsafmæli líka og btw þá er þetta allt saman á tveimur vikum .... úff ég fæ líka grænar af því að hugsa um hvað það verður mikið að gera hjá mér í skólanum í mars, 2 ritgerðir, fyrirlestur, 2 próf og 2 skilaverkefni :S
góði guð gefðu mér 40 tíma sólarhring !
jueves, 23 de febrero de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Ég væri alveg til í að skipta við þig um mánuð, minn febrúar er eins og þinn mars :o( Það er bara lifað á vatni og brauði þessa dagana ;o) Pjakk ! En með bókina og ritgerðina...er að vinna í þessu, sendi þér svo afraksturinn og REIKNINGINN ;o) hehehehe.... Gangi þér annars bara vel vinnualkinn þinn ;o)
hey það er nú næstum ár þangað til þú verður 22 !
crap! 22 ára! við erum að verða gömul!
Publicar un comentario