Manni getur ekki leiðst þegar maður býr á Hlemmi. Ef mér leiðist þá labba ég bara að stofuglugganum og horfi út, það er alltaf eitthvað í gangi fyrir utan hjá mér ! Jebb lífið á Hlemmi.
Um daginn reif ég upp kistuna mína, æðislega flott kista sem að mig var búið að dreyma um árum saman og mamma og pabbi gáfu mér svo í afmælisgjöf held ég þegar ég varð 16 ára. En alla veganna í dag geymir þessi kista myndir frá ýmsum tímabilum og dagbækurnar mínar ! Ég á dagbækur frá því í 9.-10. bekk sem ég nenni aldrei að kíkja í en svo á ég líka dagbækur frá Venezuela.
Ég skrifaði í dagbók nánast allan tímann á meðan ég var þarna en sérstaklega í byrjun þegar ég var hjá psycho fjölskyldunni, þá leiddist mér svo og ég sat í skólanum og skrifaði allt að 15 bls á dag !!! Það tekur ekki nema 2 bls í mesta lagi að segja allt það merkilega sem maður gerði yfir daginn svo að hinar 13 blaðsíðurnar voru ekkert nema pælingar og þær er gaman að lesa ... Ómen :P ótrúlegt að fá að kíkja svona á sínar eigin hugsanir e-r ár aftur í tímann og sjá hvað maður er allt öðruvísi staddur í lífinu en maður hafði ímyndað sér :)
Undir lokin skemmti ég mér svo vel að ég var farin að vera löt að skrifa og henti bara niður á blað því helsta sem ég var að gera og svo tók ég upp á því að skrifa bara í dagbókina á SPÆNSKU ! og hey ég lenti í því þegar ég var að lesa þetta að ég var að nota orð sem ég mundi ekki einu sinni eftir :Þ
Góðar fréttir, ég held að ég sé búin að gera plan fyrir næsta árið (fyrir þá sem hafa e-n áhuga *kallsemerskrítinnásvipinn* Ég held ég fari í sálfræðina aftur klári BA með 60e sálfræði og spænsku 30e þannig að ég verði búin þarnæsta vor. Svo get ég alltaf (innan 10 ára reyndar) klárað fulla BA gráðu ef að ég hef áhuga á því ! Hljómar þetta ekki bara ágætlega :Þ Ógeðslega væri ég svo til í að skella mér bara í heimsreisu haustið 2007 :O :D en ég á alveg eftir að fá Orra inn á það ;)
Jæja ég held að það sé bara best að ég skelli mér í bælið, þarf að mæta aftur í vinnuna á morgun í 10 tíma og ætla mér víst að læra eitthvað af viti !
Que duerman con los angelitos

3 comentarios:
Endalausit bloggflutningar hjá þér stúlka.
En í sambandi við 123.is: er ekki árgjald þar?
-best að vera þar sem ókeypis er að vera ;)
hehehe ;) bara á fimmtudaginn varstu að bölva sálfræðinni. Og haltu þig bara við blogspot - svona :) broskallar eru ekkert síðri en aðrir
Mér finnst frábært planið þitt, frábært að vera komin með eitthvað heilsteypt til að stefna að, gangi þér bara súper vel. Ég hef líka ekki trú á öðru nema að þú náir að sannfæra Orra í heimsreisu 2007, ef ekki þá er ég game ;o)hehehe...
Publicar un comentario